03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (977)
120. mál, fiskimat
Ólafur Thors:
Í grg. frv. er vikið að gangi málsins, og skal ég ekki gera hann að umræðuefni hér. En ég vil benda sjútvn. á, að á meðal þeirra ákvæða, sem hún hefir fellt inn í frv., er eitt, sem ég tel óheppilegt. Það er í 3. mgr. 7. gr. og er á þá leið, að fiskimatsmenn skuli fá greiddan úr ríkissjóði kostnað vegna tilrauna um geymsluþol fiskjar, bættar verkunaraðferðir, gæði salts o. þ. h., er þeir mega gera, eftir reikningi, sem atvmrn. úrskurðar. Ég held, að af þessu gæti leitt talsverðan kostnað og vil því setja þrengri skorður, þannig að ekki megi framkvæma þessar tilraunir nema samþykki ráðuneytisins sé fengið áður og það hafi borið málið undir þá n., sem á að vera því til aðstoðar í þessum efnum. Vænti ég þess, að sjútvn. athugi þetta til 2. umr. og beri þá fram brtt. um þetta. Að öðrum kosti mun ég gera það.