07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (984)

120. mál, fiskimat

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Ég benti á það við 1. umr. þessa máls, að það væri heppilegt að gera einhverjar breyt. á 7. gr. frv., til þess að setja skorður við því, hvaða kostnaði yfirmatsmenn gætu hætt á ríkissjóð, með því að gera tilraunir með nýjar og bættar verkunaraðferðir og aðrar rannsóknir, sem getið er í gr.

Ég leiddi þá nokkur rök að því, að ástæða væri til þess að setja þessu takmörk og gerði ráð fyrir, að hv. sjútvn. mundi taka það til athugunar, enda lét frsm. svo um mælt. Nú vil ég spyrja hv. n., hvort hún hafi haft þetta að engu, eða henni hafi láðst að taka þetta til athugunar, og ef svo er, legg ég til, að málið verði tekið út af dagskrá, til þess að n. geti talað saman um, hvort þessar aths. mínar séu á viti byggðar.