07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (986)
120. mál, fiskimat
Ólafur Thors í [óyfirl.]:
Ég ætla ekki að þessu sinni að fara langt út í rökræður um þetta mál, af því ég hugsa mér að bera fram þá ósk við hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá, til þess að mér gefist tækifæri til að bera fram brtt.
Til að rökstyðja þessa ósk mína, vil ég skýra frá því, að mér er persónulega kunnugt um, að gerðar hafa verið tilraunir í þessu efni, sem kostuðu þann, sem þær gerði, tugi og jafnvel hundruð þúsunda. Og það er misskilningur, ef hv. þm. Vestm. hyggur, að ráðuneytið hafi í hendi sinni að neita að borga reikninga, að því leyti sem þeir eru réttir. Gr. segir skýrt, að yfirfiskimatsmenn eigi að fá greiddan úr ríkissjóði kostnað vegna tilrauna með nýjar eða bættar verkunaraðferðir, rannsókna á salti, geymsluþoli fiskjar og öðrum tilraunum, sem lúta að auknu verðmæti hans. eftir reikningi, sem atvmrn. úrskurðar. Það að úrskurða reikning þýðir ekki, að ráðuneytið megi neita honum, ef hann er réttur. Það þýðir að dæma um, hvort reikningurinn er réttur eða rangur, og hann á að greiðast, ef hann er réttur. Samkv. 7. gr. er yfirmatsmönnum heimilt að gera tilraunir, og ef þeir senda ekki reikning fyrir öðru en kostnaðinum við þær, þá á ráðuneytið að greiða hann. En ég vil ekki gefa þeim svo óbundnar hendur, af því að mér er sjálfum kunnugt um, hvað þetta getur kostað, en það er ekki af því, að ég telji slíkar tilraunir ekki nauðsynlegar: um það er ég sammála hv. frsm.