07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

120. mál, fiskimat

Ólafur Thors:

Ég get látið nægja að vísa til þess, sem ég sagði áður en umr. var frestað. Ég færði þá rök fyrir því, að það væri nauðsyn til þess að fella breyt. aftan við 3. málsgr. 7. gr., og þar sem hv. sjútvn. hefir ekki tekið aths. mína til greina, mun ég leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. um þetta, sem tryggir, að tilraunir þær, sem um ræðir í 7. gr., verði ekki gerðar á kostnað ríkissjóðs, nema samþykki ráðuneytisins hafi komið til.

Ég geng út frá því, að þegar ráðuneytinu berst fyrirspurn frá matsmönnum um það, hvort ráðuneytið samþykki að borga kostnaðinn við slíkar tilraunir, þá snúi ráðuneytið sér til hinnar ráðgefandi nefndar og fái sem ýtarlegast álit hennar um gagnsemi þessara tilrauna, og að fengnu þessu áliti taki ráðuneytið sínar ákvarðanir. Þessi till. er með öllu óskaðleg, en nauðsynleg til að tryggja það, að kostnaður verði ekki úr hófi.