24.02.1932
Efri deild: 10. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)
41. mál, ríkisábyrgð á innstæðufé Útvegsbanka Íslands
Jón Baldvinsson:
Hv. þm. Seyðf. gerði í Nd, grein fyrir afstöðu Alþýðuflokksins til þessa máls. Vísa ég til þess og vil ekki endurtaka það hér, þar sem. hv. þdm. munu hafa heyrt það þar, og einnig á einkafundi þeim, sem haldinn var um málið síðastl. nótt.