01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)
50. mál, leyfi til loftferða
Haraldur Guðmundsson:
Ég vil gjarnan vekja athygli n. á nokkrum atriðum í frv. þessu, sem mér líka ekki. Það er þá fyrst orðalagið á 3. gr., sem mér finnst allundarlegt. Þar stendur svo: „Leyfishafa skal heimilt að taka lögnámi land eða réttinda yfir landi.“ o. s. frv. Ég kann ekki vel við þetta. Það er óvenjulegt hjá okkur Íslendingum, að einstökum mönnum sé gefin slík heimild til lögnáms á landi: Að vísu er síðar í gr. tilskilið, að atvmrh. viðurkenni nauðsynina til lögnámsins, en það hefði þá alveg eins verið hægt að gefa ríkisstj. lögnáms- eða leiguheimild, sem hún gæti svo afhent fél., ef ástæða þætti til.
Þetta er að vísu ekki stórvægilegt atriði, en mér hefir þó þótt réttara að benda á það.
Þá verður eigi annað sagt, en að 5. gr. frv. veiti fél. alveg sérstaka aðstöðu, ólíka aðstöðu allra þeirra atvinnufyrirtækja, sem nú starfa hér á landi, þar sem fél. er undanþegið öllum sköttum, bæði útsvari og tekju- og eignarskatti. Það mun þó eiga að greiða visst hundraðsgjald af öllum flutningum frá landinu og eins öllum innanlandsflutningum. En eins og hv. frsm. tók fram, þá rennum við algerlega blint í sjóinn með það, hversu miklar þær tekjur verða, sem fast á þann hátt, eða hversu mikill skattur þau útgjöld verða fyrir fél. En þó er gert ráð fyrir því, að hundraðsgjaldið haldist óbreytt í 15 ár. Með þessu finnst mér mjög teflt á tvísýnu um skatt á fél. og tekjur til handa ríkissjóði og, bæjarfél. Tel ég alls ófært að hafa gjald þetta óbreytt svo langan tíma, 15 ár, og eðlilegast, félagið lúti venjul. ísl. lagaákvæðum um skattgreiðslur til ríkis og bæja.
Að síðustu er það 10. gr., þar sem ákveðið er, að leyfið gild til ársloka 1986, þótt ekkert sé aðhafzt af fél. hálfu. Í gr. segir svo: Ákveða má í leyfinu, að réttur leyfishafa. skv. því skuli fallinn niður, hafi hann eigi komið á föstum loftferðum milli Íslands og annara landa fyrir árslok 1936“. Þótt ekkert verði aðhafzt í 5 ár, þá er leyfi þetta samt sem áður í fullu gildi og engum öðrum fél. í Vesturheimi heimilt, þótt þau gætu, að halda uppi flugferðum á milli landanna. Mér finnst þessi tími óþarflega langur, og ekki rétt að miða við það, hvenær flugferðir hefjist. mér finnst tryggara fyrir okkur, að annaðhvort sé fél. skylt að leggja fram vissa fjárhæð sem tryggingu fyrir því, að eitthvað verði úr framkvæmdum — en slíkt er þó vitanlega ekki hægt að heimta fyrr en vitneskja er fengin um það, hvort fél. nær samningum við önnur ríki, sem hér eiga hlut að máli, um byggingu lendingarstöðva o.þ. h. —, eða þá að fél. verði að byrja á verkinu innan einhvers tiltölulega skamms tíma. Eftir því, sem mér skilst, er fél. lítið að vanbúnaði þegar það hefir fengið leyfi hlutaðeigandi ríkja til þess að byggja vita, móttökustöðvar o. f l. þ. h.
Ég hefi leyft mér að vekja athygli hv. samgmn. á þessum þremur atriðum og vona, að hún taki þau til gaumgæfilegrar athugunar.
Ég skal að lokum taka undir það með hv. þm. Dal., að mér þykir réttara, að í þessu frv. komi fram glögg og tvímælalaus ákvæði um rétt okkar til að stöðva flugferðir, banna flutning og jafnvel taka lendingarstöðvar og banna félaginu afnot þeirra ef til ófriðar skyldi koma.