17.03.1932
Efri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

50. mál, leyfi til loftferða

Frsm. (Páll Hermannsson):

Hv. þm. Snæf. tók í rauninni alveg af mér ómakið með að svara hæstv. forsrh. — Hann lýsti alveg rétt, hvað vakti fyrir n. með þessari breyt. Það var ekki tortryggni, heldur varúð. Við erum hér að gera ráðstafanir fyrir ókomna tímann, sem enginn veit, hvað kann að bera í skauti sínu. Og þó að við treystum vel þeim ágætu íslendingum, sem hafa flutt mál þetta fyrir félagsins hönd, þá ber okkur skylda til að gera varlegar ráðstafanir fyrir framtíðina, þar sem hvorki þeirra né okkar nýtur við. Hæstv. ráðh. benti á, að þetta félag færi ekki fram á mikil réttindi sér til handa. Það má vera, að svo sé ekki í samanburði við önnur félög, sem sótt hafa um leyfi svipaðs eðlis. En mér finnst það hreint ekki svo lítið, sem þetta félag fer fram á. Bæði er það undanþegið almennum gjöldum til ríkissjóðs og sveitar, og auk þess gefinn einkaréttur á þessum atvinnurekstri hér um langt árabil.