19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)

50. mál, leyfi til loftferða

Frsm. (Sveinn Ólafsson):

Frv. þetta hefir orðið fyrir lítilsháttar breyt. í hv. Ed., sem eru þó að mestu aðeins formsatriði. Telur samgmn. breyt. þessar fremur til bóta og frv. aðgengilegra eftir en áður. Leggur hún því til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.

Af því að ætla má, að frv. þetta verði bráðlega að lögum, þykir mér við eiga að minnast á annað frv., að efni skylt, sent komið er fram í þessari hv. deild og lýtur að því að fella úr gildi lög um stofnun flugmálasjóðs Íslands. Finnst mér því tímabært að geta þess, að síðustu dagana hafa tekizt undirbúningssamningar með Flugfélagi Íslands og hinu vestræna félagi um kaup á flugvélum þeim, sem hér hafa notaðar verið, og öðrum eignum félagsins. Eru því líkur góðar til þess, að Transamerican Airlines Corporation taki að sér að reka flugvélar þær, sem hér hafa verið að undanförnu, halda uppi flugferðum jafnvel á sumri komandi um landið, ásamt síldarleit eða veiðiflugi. En vestræna félagið hefir tilskilið, ef til framkvæmda komi, að flugmálasjóðsgjaldið haldist svo sem 1. frá 1930 mæla fyrir og verði til innlenda flugsins varið.

Flugfélag Íslands hefir, svo sem kunnugt er, orðið að hætta störfum vegna fjárskorts og skuldasöfnunar, og má því telja tilboð vestræna félagsins mjög hagfellt, enda skilyrði þess mjög aðgengileg, bæði vegna flugvélakaupanna, sem losað getur innlenda félagið við eldri skuldir, sem og vegna framhalds þess á flugferðum innanlands, sem ella hefðu á þessu ári fallið niður.

Af framantöldum ástæðum virðist mér því, að um leið og vestræna félagið fær lögfestan rétt sinn hér til millilandaflugs, þá verði jafnframt sú ákvörðun. tekin, að afgr. ekki að svo stöddu frv. um. afnám laga um stafnun flugmálásjóðs frá 1930.

Annars finn, ég ástæðu til að benda á það, að flugferðir hér til síldarleitar hafa vakið allmikla eftirtekt í nágrannalöndum vorum, t. d. við norðanverðan Noreg. Hafa þar verið teknar upp sviplíkar aðferðir um leitun síldar og hér hafa tíðkazt með flugvélum undanfarin sumur, og síldarleitin íslenzka þannig að fyrirmynd tekin. Er ekki nema gott til þess að vita, að Íslendingar hafa orðið brautryðjendur á þessu sviði, og finnst mér því síður en ella ástæða til að láta þessar tilraunir falla niður, þegar tækifæri býðst eins og nú til að halda þeim áfram án aukinna erfiðleika eða fjárfórna.

Að svo mæltu ætla ég ekki að hafa þessi orð fleiri, en leyfi mér að vænta eftir góðum undirtektum við þetta mál og að frv. verði nú þegar að lögum.