24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)

33. mál, ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóli Íslands

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hafði haldið, að allur styrkur til ljósmæðrakennslunnar væri fólginn í þeim 4000 kr., sem landsspítalanum eru ætlaðar í þessu skyni í fjárlagafrv., enda er sú upphæð miðuð við það, sem kennslan hefir kostað áður. Í þessu frv. er sá kostnaður áætlaður eitt þús. kr. hærra en verið hefir, og kemur mér því á óvart, ef skólinn með nýju og að því er virðist ódýrara fyrirkomulagi á að kosta meira en áður að viðbættum styrk til nemendanna. Annars vænti ég, að hv. n. athugi þetta vel og vandlega.