18.04.1932
Neðri deild: 54. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

1. mál, fjárlög 1933

Jónas Þorbergsson:

Að þessu sinni er nafn mitt ekki bundið við neinar ásetningssyndir í sambandi við fjárlögin, hvað svo sem kann að verða um breyskleikasyndirnar, þegar til atkvgr. kemur.

Ég á hér brtt. á þsk j. 452, sem nýlega hefir verið útbýtt. Sú till. er ekki til þess að hækka útgjöld ríkisins, heldur er það aths. við aðra brtt., og vil ég með leyfi hæstv. forseta lesa hana upp, en hún hljóðar svo: „Aftan við liðinn bætist svohljóðandi aths.: Af þessari fjárveitingu ganga 1000 kr. til frú Soffiu Guðlaugsdóttur til sjálfstæðra leiksýninga, ef ekki næst samkomulag um samstarf milli hennar og Leikfélagsins“. Till. þessa verður að athuga í sambandi við XIX. brtt. á þskj. 418, frá hv. 3. þm. Reykv., þar sem farið er fram á, að frú Soffíu Guðlaugsdóttur verði veittar 1500 kr., en til vara 1200 kr.

Eins og hv. þdm. er kunnugt, er frú Soffía Guðlaugsdóttir talin ein með allra beztu leikkonum hér á landi. Hefir þingið einnig viðurkennt það með því að veita henni styrk til leiknáms erlendis. frá því 1916 hefir hún leikið hér í ýmsum leikritum og oft vandasömustu hlutverkin, þar til fyrir tveimur árum, að Leikfélag Reykjavíkur var endurreist og fékk nýja stj., að samningar tókust ekki milli hennar og leikfélagsins um áframhaldandi störf hennar þar. Ég hefi hér í höndum bréf frá frú Soffíu til leikfélagsins, sem sýnir skilmála hennar um samstarf við félagið. Skal ég, með leyfi hæstv. fors. lesa kafla úr bréfinu. Þar segir svo:

„Ég vil því enn, með skírskotun til bréfs míns í gær, endurtaka þá ósk mína: Að ég fái framvegis að koma til greina, þegar félagið velur sér leikendur í aðalhlutverk í sjónleikjum sínum, og að ég fái jafnframt að vera með í ráðum, þegar valin kynnu að verða þau hlutverk, sem mér væri ætlað að leika“.

Með öðrum orðum: Skilmálarnir eru þeir, að hún geti komið til greina, þegar valið er í hlutverk, og að hún fái að vera með í ráðum um val þeirra hlutverka, sem henni væri ætlað að leika. — Þetta virðist sanngjörn krafa, og skilst mér, að hún hljóti að vera í samræmi við þær starfsaðferðir, sem leikfélög muni heita, þegar valið er í hlutverk. En leikfélagið hefir þó ekki viljað verða við þessum sanngjörnu tilmælum frúarinnar. Virðist sem lítil sanngirni komi þarna fram af hálfu leikfélagsins, án þess þó að ég ætli frekar að leggja dóm á það. — Þetta, sem ég hefi sagt eru líka rök með till. frá hv. 3. þm. Reykv. En með því að ég geri ráð fyrir því, að þingið verði ekki fúst til að veita frekari upphæðir til leiklistar, þá hefi ég flutt þessa brtt., fer ekki fram á hækkun, heldur fram á það, að frú Soffia Guðlaugsdóttir fái hluta af styrknum, ef ekki næst samningur milli hennar og leikfélagsins. Ég vona svo, að hv. d. sjái sér fært að samþ. þessa till.

Þá á ég aðra brtt. á þskj. 418, sem og bar fram við 2. umr., en tók þá aftur til 3. umr. vegna þess, að gögn þótti skorta í málinu. Þar er farið fram á, að veita Önnu H. Sigurðardóttur ljósmóður 300 kr., og til vara 200 kr., eftirlaun á 18. gr. fjárlaganna, svo sem mörgum fleiri ljósmæðrum er veitt. Fjvn. getur þess í nál. sínu, að með beiðnum um eftirlaun handa póstum og ljósmæðrum hafi skort gögn s. s. um efnahag og starfstíma umsækjenda, og taldi sig þess vegna ekki geta mælt með því, að umgetnum beiðnum væri sinnt. Til þess að afla upplýsinga, vegna beiðni þeirrar er ég flyt, fékk ég símskeyti frá sýslumanninum í Dalasýslu, sem upplýsir um starfstíma þessarar ljósmóður og það, að hún er algerleg eignalaus. Ég vænti því, að fjvn. geti verið með þessu, þar sem ekki skortir nú lengur gögn í málinu.

Annars þykir mér það kynlegt hjá fjvn. og ég get eins sagt það, þótt ég eigi sæti í n., því að öllu er ég ekki sammála, sem frá henni kemur, að hún tekur allar prestsekkjur umtalslaust og athugasemdalaust á eftirlaun. En þegar beðið er um lítilfjörlegan styrk handa ljósmæðrum, sem oft hafa unnið miklu meira og merkilegra starf í þágu þjóðarinnar, að prestskonunum alveg ólöstuðum, þá verður að heimta hin fyllstu rök fyrir því, að þær séu styrksins verðar.

Ég mun svo ekki hafa fleiri orð um þetta. — Vona aðeins, að hv. d. sjái sér fært að veita þessari ljósmóður þennan litla styrk, þar sem margar aðrar ljósmæður hafa fengið samskonar eftirlaun. Þá er síðasta brtt. mín, sem ég þó legg ekki hvað minnsta áherzlu á. En till. fer fram á, að veittar verði 65 þús. kr. til þátttöku í rekstrarkostnaði útvarpsviðtækja þeirra útvarpsnotenda, sem ekki eiga kost á raforku. Þetta er fram borið vegna kvartana, sem borizt hafa um það, að þeir útvarpsnotendur, sem ekki eiga kost á rafmagni, geti ekki notað útvarpstækin vegna kostnaðar. Nú munu vera um 4500 útvarpsnotendur alls á landinu. Hefir þeim nokkuð farið fjölgandi síðan á nýjári, þrátt fyrir kreppuna, og sýnir það, að útvarpið er eitt af því fáa, sem heldur áfram að vara á þessu landi, og er það vottur þess, að landsmenn vilja ekki án þess vera eða missa það.

Af útvarpsnotendum munu vera aðeins 72 til 13 hundruð í sveitum landsins. Þar er þó yfirleitt ekki minni þörf fyrir ráð en í kaupstöðunum, heldur þvert á móti. Eitt af hlutverkum útvarpsins er að færa byggðirnar saman, færa þær inn í straum menningarinnar. En þar sem ekki er kostur á raforku, geta þær ekki nema að litlu leyti notið þessa menningartækis. — Nú eru horfurnar þær, að margir, sem þó hafa klifið þrítugan hamarinn til að eignast tæki, verði að gefast upp við að nota þau vegna rekstrarkostnaðar.

Við afgreiðslu fjárlfrv. hefir bæði fjvn. og þessi hv. d. gengið langt í því að klípa af fjárveitingum, sem hingað til hafa verið veittar til að hjálpa sveitum landsins. Og það er almennt álit, að því fé, sem varið er til jarðræktar og húsabóta í sveitum, sé vel varið, enda þótt nú verði að takmarka það um stund. En ég vil benda á, að þótt útvarpið megi kannske fyrst og fremst teljast menningartæki, þá hefir það líka hagnýta þýðingu fyrir byggðir landsins og hana ekki svo litla. Veðurfarsfréttirnar einar út af fyrir sig, koma ekki eingöngu að gagni fyrir sjómannastéttina, heldur og líka fyrir bændurna. Annálar okkar Íslendinga hafa margar sögur að segja um skyndiáhlaup veðra, sem grandað hafa fé og mönnum, unnvörpum. Verði útvarpið nægjanlega útbreytt, getur það alveg komið í veg fyrir slíkt tjón, sem alstaðar getur verið hætta á, einkum þó á Norður- og Austurlandi, þar sem slíkra drápsveðra er mest von. Veðurstofan getur nægilega fljótt sagt fyrir um slík veður, og þeir menn, sem útvarps njóta, hagað sér eftir því. Einnig kemur útvarpið að hagnýtu gagni um sláttinn. Maður úr Eyjafirði hefir sagt mér það, að bændur inn í héraðinu hafi mjög mikið gagn af veðurfregnunum í sambandi við heyvinnuna. Og ég veit, að svo er viða um land. Ég hefi viljað benda þeim á þetta, sem máske telja ekki mikils virði fræðandi fyrirlestra, upplestur, músík, almennar fréttir, bæði innlendar og útlendar o. fl. Það má segja, að komast megi af án alls þessa á krepputímum. En án veðurfregna hygg ég að menn telji sig illa geta verið, þegar þeir hafa lært og vanið sig á að nota þær til hjálpar í starfi sínu.

Ég hefi borið fram þessa till. af ótta við það, að bændur yrðu að hætta við útvarpið vegna hins háa rekstrarkostnaðar. Við það myndi og útvarpið tapa ársgjöldum. En mér hefir þótt réttara að fara þessa leið að jafna aðstöðumismuninn heldur en að fella niður ársgjaldið. Sá skattur er hér ekki þar, miðað við það, sem tíðkast annarsstaðar. Í Þýzkalandi t. d. er útvarpsskatturinn eins þar og hér, og eru þar þó 5 millj. útvarpsnotenda. Þar sem rekstrarútgjöld sumra útvarpsnotenda, þeirra er eigi hafa rafmagn, er um 80–100 kr. á ári, en sama sem enginn h já þeim, sem hafa rafmagn, þá tel ég ráð skyldu þingsins að jafna þennan aðstöðumun. Hitt er svo rétt, að allir borgi jafnan skatt.

Ég sé eigi þörf á að fjölyrða meira um þetta. Ég veit, að hv. deildarmenn viðurkenna þörfina. Hitt er annað mál, hversu langt þeir treysta sér að ganga í þessu efni sem öðrum við afgreiðslu fjárlaganna.