08.03.1932
Neðri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1100)

33. mál, ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóli Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

Út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, að það væri æskilegt, að þessi kennsla væri leyst af hendi aukaborgunarlaust, vil ég benda honum á, að það er einmitt það, sem ég vil líka. Það er áreiðanlegt, að læknar spítalans, sem hafa afarhá laun, færu ekki að gera ljósmæðraskólanum ómögulegt að starfa með því að neita því að kenna þessi fræði án aukaborgunar. Ég verð að taka undir það, sem hv. 2. þm. Skagf. sagði, að ég tel lítt hugsanlegt, að heilbrigðisstj. hafi verið svo fákunnandi að gera slíka samninga við læknana, að þeir geti alveg skotið sér undan þessu starfi. Eða er það tekið upp í samningnum. hvaða verk skuli vinna, alveg út í yztu æsar. Það er meiri samningurinn, ef þar er talið upp hvert einasta verk, sem læknarnir eiga að vinna fyrir föstu launin. Svo getur líka farið svo, að einhver af þessum góðu mönnum falli frá — sem ég þó sízt óska eftir —, og þá verður að gera samning á ný, og þá mætti taka það fram, að þetta ætti að vera eitt af störfum læknanna. Það er því engin ástæða til að draga það lengur að setja þetta beinlínis í lögin.