08.03.1932
Neðri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

33. mál, ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóli Íslands

Lárus Helgason:

Hv. þm. Ísaf. sagði, að engin sveitarstjórn mundi óska eftir, að ljósmæður lykju námi á 9 mán. Þetta er ekkert nema fullyrðing, sem hann veit ekkert um og getur engar sönnur fært á.

Ég hafði vonað, að núv. landlæknir mundi taka vel í það, að stúlkur gætu fengið að ljúka þessu námi á 9 mán., þegar meðmæli lægju fyrir um það frá héraðslækni og sveitarstjórn, en þegar ég nú heyri, að það er ekki, þá sé ég ekki annað fært en að bera fram þessa skrifl. brtt., sem skyldar landlækni að veita þetta leyfi, verði hún samþ. Ég vona því, að hv. hdm. geti fallizt á þessa till.