20.04.1932
Neðri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í C-deild Alþingistíðinda. (11134)

248. mál, lögskráning íslenskra manna á erlend fiskiskip

Jón Ólafsson:

Ég rak augun í það í grg. frv.,. að þar stendur, að ísl. sjómenn séu að gerast sínir eigin böðlar, og má segja, að það sé satt, þar sem svo hart hefir verið gengið að ísl. togaraútgerð sem gert hefir verið. Sjómenn hafa verið svo harðir í kröfum sínum, að útgerðin hefir ekki staðizt, og þar með hafa þeir gerzt sínir eigin böðlar, enda er svo komið nú, að tveir togarar liggja nú inni og enginn fæst til að gera þá út.

Ég held nú, að hér sé ekki um svo mikla hættu að ræða, þó að þessir menn ráði sig á þessi útlendu skip. Það er að vísu svo, að ef þeir væru ekki á skipunum, þá lærðist útlendingunum það kannske eitthvað seinna að þekkja miðin og veiða fisk á þeim, en þessi hætta er þó svo hverfandi lítil, að það er engin ástæða til að svipta þessa menn atvinnu sinni fyrir það. Ekki kenndum við Englendingum að veiða, og þó hafa þeir komizt upp á það. (PO: Jú, þeir fengu íslenzka fiskikapteina). Aðeins við veiðar hér í Faxaflóanum, en þeir eru frá gamalli tíð kunnugir hér við land. Þeir, sem leggja kapp á að fiska hér, heim mun takast það. Það má taka dæmi af okkur Íslendingum sjálfum. Við kunnum ekki að fara með togara og botnvörpur 1906, — en hvernig hefir farið? Nú höfum við fjölda manna, sem kunna til fullnustu að nota botnvörpu og þekkja öll mið hér við land. Hv. þm. hefir því ekki fundið neitt öruggt ráð með því að ætla að banna þessum mönnum að ráða sig á erlend skip, því að eins og ég hefi bent á, þá er það þýðingarlaust. Svo verður líka að taka tillit til þess, að á þessum erfiðu tímum megum við ekki banna innlendum mönnum að fá vinnu, hvar helzt sem er, og þarna hafa þó nokkrir íslenzkir menn fengið atvinnu, sem rekin er af útlendingum, og við það kemur útlent fé til landsins, og það er ekki svo lítils virði. En það er annað, sem við þurfum að banna, og það er það, að útlendir menn séu teknir í vinnu hér innanlands. Ég álít miklu meiri þörf á að banna það heldur en að innlendir menn fái vinnu hjá útlendingum.

Ég mun greiða atkv. með þessu frv. til n. og 2. umr., hvaða afstöðu sem ég tek svo til þess síðar meir.