22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í C-deild Alþingistíðinda. (11158)

282. mál, siglingalög

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Þessu frv. er ætlað að leiðrétta tvo fremur lítil atriði í siglingalöggjöf okkar. Önnur breyt. er sú, að láta sjóveðrétt líka ná til vátryggingarfjár skips og farmgjalds, meðan það er ekki af höndum greitt. Hin er um það, að fyrirfram gefið afsal skipshafnar eða einstakra skipverja á sjóveðrétti skuli vera ógilt. Það getur orkað tvímælis, hvernig ber að skilja ákvæði núgildandi laga um þetta efni, og því þörf á, að skýr ákvæði séu sett. Ég vona, að frv. þetta verði sent til sjútvn. og 2. umr. og síðan afgr. sem fyrst til deildarinnar.