30.03.1932
Efri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

33. mál, ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóli Íslands

Frsm. ( Einar Árnason ):

Þetta frv. er komið frá Nd. og var þar flutt af landlækni, sem þar á sæti sem þm. Ísaf. — Í nál. á þskj. 246 er skýrt frá því, hvað í frv. felst, og get ég því sleppt að fara út í það. Frv. er í aðaldráttunum svipað því, sem það var frá hendi landlæknis, nema hvað gerðar hafa verið 2 breyt. á því í meðferð þess í Nd. Er önnur breyt. á 3. gr. frv., þess efnis, að landlækni er heimilað að stytta námstíma ljósmæðraefna úr 12 mánuðum, eins og hann er ákveðinn í frv., niður í 9 mánuði, ef sveitarstj. óskar og héraðslæknir mælir með þessu. N. lítur svo á, að það komi ekki til mála, að slík undanþága verði veitt, en henni þótti þó ekki ástæða til að fella þetta út úr frv. og hefja svo stríð við Nd. um málið, af því að vitanlegt er, að landlæknir mun aldrei neyta þessarar heimildar. Hin breyt., sem komst inn í frv. í Nd., er við 1. gr. þess, þess efnis, að yfirlæknunum við landsspítalann er gert að skyldu að annast kennsluna við ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskólann án nokkurrar sérstakrar aukaþóknunar. Hefir n. ekki getað fallizt á, að sanngjarnt sé að krefjast þessa, og hefir því borið fram brtt. við frv. í þá att, að kennslan við ljósmæðradeildina sé undanþegin þessu ákvæði, en hinsvegar er ætlazt til, að yfirlæknarnir allir kenni við hjúkrunarkvennadeildina án sérstakrar aukaþóknunar, og er mér kunnugt um, að yfirlæknarnir munu ekkert hafa við það að athuga. Kennslan við ljósmæðradeildina lendir hinsvegar aðeins á einum af yfirlæknum spítalans. Er það starf svo umfangsmikið, að lítil líkindi eru til þess, að hann geti sinnt því sjálfur vegna annara starfa, heldur verði að kaupa sér mann til þess, og þar sem þessi yfirlæknir hinsvegar jafnframt kennir við hjúkrunarkvennadeildina, yrði með þessu lögð sérstök kvöð á hann umfram hina yfirlækna spítalans, sem er mjög ósanngjarnt, og hefir n. því borið fram áðurnefnda brtt., er að því lýtur, að greitt verði hæfilegt gjald fyrir kennsluna við ljósmæðadeildina sérstaklega.

Ég hefi tekið eftir því, að hv. þm. Snæf. ber fram brtt. við frv. í þá att, að fellt verði niður þetta atriði 3. gr., sem ég minntist á, og skal ég aðeins láta þess getið, að einstakir nm. hafa óbundið atkv. um þessa till.