22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í C-deild Alþingistíðinda. (11169)
284. mál, samvinnufélög
Flm. (Hannes Jónsson):
Ég veit ekki, hvort ég á að skilja orð hv. þm. svo, að hann þykist hæfari en ég til að ráða menn til starfa norður í landi. Ég hygg, að hann hafi hvorki betri aðstöðu né meiri þekkingu á því en ég eða aðrir, sem eiga heima á þessum stöðum, til þess að velja menn að störfum. Því undarlegra er það, að hann skuli telja sig eiga að ráða þessu og þessa einstöku verndara verkalýðsins og alþýðunnar, sem réttu sína föðurlegu hjálparhönd norður á Blönduós, þó að sumum þætti það með nokkuð undarlegum hætti. Hér í Rvík hafði að sögn verið safnað af verkalýðsfélögunum 200 kr. til hjálpar verkamönnunum á Blönduósi, en svo kom á daginn, að hér var ekki gjaldgengur verðmiðill á ferðinni, heldur mun hv. 3. þm. Reykv., sem átti hjá kaupmanni á Blönduósi skuld, er hann treysti sér ekki að innheimta, hafa stungið 200 kr. í sinn vasa og gefið svo út ávísun á kaupmanninn fyrir þeirri upphæð, sem safnazt hafði hér og sendast átti norður, og mátti kaupmaðurinn greiða þetta í vörum til verkamanna. Ekki er mér kunnugt um, hvaða hundraðsgjald hv. 3. þm. Reykv. hefir reiknað sér fyrir þessa milligöngu, en reikningar hans og kaupmannsins hafa eflaust lagazt við þetta. Hitt er aftur á móti kunnugt, að verkamennirnir á Blönduósi voru ekki neitt sérstaklega hrifnir af föðurlegri umhyggju hv. 3. þm. Reykv., er kom fram í þessari ráðstöfun hans á samskotafénu frá flokksbræðrunum í Reykjavík.