06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í C-deild Alþingistíðinda. (11180)

284. mál, samvinnufélög

Héðinn Valdimarsson:

Ég vona, að allir hv. þdm. hafi tekið eftir því, að þm. V.-Húnv. hefir engu getað svarað því, sem ég rak ofan í hann með vottorðum frá pósthúsinu. Ég lýsti hann þá lygara að því, sem hann áður hafði á mig borið, og sannaði það. Viðvíkjandi því, sem hann sagði nú, að ég hefði beðið hann fyrir skilaboð til hv. allshn., lýsi ég hann einnig lygara, og vænti ég að geta lagt fram um það vottorð tveggja skilríkra votta á næsta fundi, sem heyrðu viðtal okkar, að hann lýgur þessu líka.