06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í C-deild Alþingistíðinda. (11186)

284. mál, samvinnufélög

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Þeir eru nú teknir til að vitna hver með öðrum, hv. jafnaðarmenn. En ég verð að segja, að þessir vitnisburðir þeirra eru ekki alveg réttir. Þegar ég hafði orð á því að reka á eftir hv. allshn. um að afgr. frv. og skila áliti sínu, þá sagði hv. 3. þm. Reykv.: „Já, gerðu það“. Ég vil skjóta því ti1 þeirra, er á hlýddu, hvort þetta er ekki rétt hermt, og um leið til hv. þm. Seyðf. að athuga, hvort þetta megi ekki skoðast sem samþykki frá hv. 3. þm. Reykv. Annars má vel vera, að hv. 3. þm. Reykv. vilji ekki fá málið á dagskrá. En ég mun ekki skorast undan umr. um málið sjálft og vil fá það aftur inn í þd., til þess að við getum leitt hesta okkar saman um það. Hitt er þýðingarlaust, að við séum að skattyrðast nú utan dagskrár. Ég vona, að hv. 3. þm. Reykv. leggist á eitt með mér að fá málið á dagskrá, svo að við fáum tækifæri til að eigast við.

Nefndarálit kom ekki, og frv. var ekki á dagskrá tekið framar.