02.06.1932
Neðri deild: 90. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í C-deild Alþingistíðinda. (11190)

289. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Forseti (JörB):

Þetta er eitt þeirra þingmála, sem óafgreidd eru, og vildi ég með því að taka málið hér fyrir nú gefa flm. þess tækifæri til að láta í ljós álit sitt um það, hverja afgreiðslu hann óskaði að málið fengi. En þar sem flm. er ekki viðstaddur, get ég orðið við tilmælum hv. þm. Seyðf. um að taka málið af dagskrá.

Forseti tók málið af dagskrá, og var það ekki á dagskrá tekið framar.