23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í C-deild Alþingistíðinda. (11201)
445. mál, atvinnuskortur í verstöðvum austanlands
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Við 2. umr. fjárlfrv. gerði ég grein fyrir atvinnuhorfum á Seyðisfirði í sambandi við brtt., sem ég flutti þá við frv. Í stuttu máli sagt er atvinnuháttum þar svo komið, að síðastl. sumar voru þar verkuð rösklega 7 þús. skp. af fiski, og minna má það ekki vera til þess að komizt verði hjá atvinnubresti yfir hásumarið. Af þessum fiski voru aðeins 2200 skp. veidd á skip og báta frá Seyðisfirði.
Undanfarið hefir það bætt mikið úr atvinnuþörfinni, að nokkuð hefir þar verið keypt af fiski úr útlendum skipum, sérstaklega úr færeyskum skipum. En nú er loku fyrir það skotið, þar sem engir peningar eru fáanlegir til að kaupa fiskinn fyrir, og heldur ekki heimilt að yfirfæra peninga til útlanda. Nokkuð hefir og verið keypt þar eða flutt þangað af fiski úr öðrum verstövum á landinu, en ekki eru horfur á, að það verði gert í sumar, vegna atvinnuskorts á þeim stöðum, nema ef vera skyldi frá Vestmannaeyjum eitthvað örlítið.
Ég þekki að vísu bezt til á Seyðisfirði, en ástæðurnar munu vera svipaðar í öðrum verstöðvum austanlands, ef til vill ofurlítið skárri á Fáskrúðsfirði og Norðfirði, en engu betri á Eskifirði. Í engum þessum kaupstaða og kauptúna er svo mikið af skipum eða bátum til fiskiveiða, að þau geti veitt fólkinu þar atvinnu í landi svo sem þörf er a. Enda hefir nokkuð verið lagt þar upp af erlendum skipum að undanförnu, og á Eskifirði hefir verið gerður út togari, sem nú er seldur burtu eða hættur að leggja þar upp afla. Það liggur því í augum uppi, að ef ekki verða gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að bæta úr ástandinu, þá verður afartilfinnanlegur atvinnubrestur eystra í sumar, til viðbótar við hið bága ástand, sem þar ríkir að öðru leyti.
Hér er í þessu frv., sem við hv. 1. þm. S.-M. berum fram á þskj. 445, bent á tvær leiðir til þess að bæta úr þessu. Í 1. gr. frv. er ríkisstj. heimilað að veita samvinnufélögum sjómanna og verkafólks í verstöðvunum Seyðisfjarðarkaupstað, Neskaupstað og Eskifirði, eða sveitar- og bæjarstjórnum þessara staða, lán til þess að kaupa saltfisk, sem veiddur hefir verið frá öðrum verstöðvum landsins, en ella mundi seldur verða óverkaður úr landi. Frá Vestmannaeyjum, og þó einkum frá Suðvestur- og Norðurlandi, hefir allmikið verið selt af óverkuðum fiski út úr landinu undanfarið.
Það liggur í augum uppi, að sú atvinna, er fæst með að verka þann fisk, fellur ekki íslenzku verkafólki í skaut. En ef farið er eftir ákvæðum frv., er tryggt, að atvinnan við fiskverkunina fellur í skaut landsmanna sjálfra, þar sem atvinnubresturinn er mestur.
Gert er ráð fyrir, að ríkisstjórninni verði heimilað að veita samvinnufélögum eða bæjarstjórnum eystra lán til að kaupa fiskinn, og megi lánin nema allt að 90% af gangverði saltfiskjar á þeim tíma, gegn fyrsta veði í fiskinum og öðrum tryggingum, er stjórnin metur gildar. Jafnframt er gert ráð fyrir, að samvinnufélögin eða bæjarfélögin sjái um verkun fiskjarins án þess að veð þurfi að falla á hann fyrir heim kostnaði. Með þessu móti virðist áhætta ríkissjóðs útilokuð. Þá er og gert ráð fyrir, að strandferðaskip ríkissjóðs annist flutning á fiskinum til verkunarstöva gegn 1/3 af venjulegu flutningsgjaldi. Ætlazt er til, að þetta verði aðeins gert í áætlunarferðum og aðeins á áætlunarstaði, þótt ekki sé það tekið fram í frv. Myndi ég ekki hafa á móti, að það yrði sett inn í frv., ef tryggara hætti. Oft og tíðum er mikið ónotað rúm í strandferðaskipunum, er sigla sunnanlands, og yrði það því ekki tap, þótt flutningsgjald væri ákveðið svona lagt, heldur auknar tekjur fyrir Ríkisskip, ef ekki þarf að neita öðrum flutningi.
Gert er ráð fyrir, að upphæð sú, er ríkissjóður lánar til fiskkaupanna, nemi allt að 600 þús. kr. hvort árið, og svarar það til 12–15 þús. skp. af saltfiski. Ef gert er ráð fyrir 14 kr. verkunarkostnaði á skp., ættu íslenzkir menn að fá 200 þús. kr. í verkalaun, sem annars færu út úr landinu.
Þá er gert ráð fyrir að stjórnin megi til 1934 leyfa nokkrum erlendum veiðiskipum að leggja upp afla sinn og láta verka hann í verstöðvum austanlands. Þetta er gert í sama skyni og hitt, til að afstýra atvinnuvandræðum. Ég hefi áður sýnt fram á, að fiskveiðilöggjöf vor, sem að vísu hefir komið víða hart niður, hefir þó komið harðast niður á Austfjörðum. Ég held, að ástæðulaust sé að óttast, þótt nokkrum skipum yrði veitt slíkt leyfi, að það spillti fyrir sólu á íslenzkum fiski erlendis. En verði ekki einhverjar slíkar ráðstafanir sem þessar gerðar, er mér óskiljanlegt annað en hörmungar og skortur sé yfirvofandi eystra og fjöldi fólks reyni að komast þaðan burt. En nú mun víðast þykja fullsetinn bekkur, bæði í kaupstöðum, verstöðvum og sveitum, og hvert á þá þetta fólk að leita? Gert er ráð fyrir, að þessar ráðstafanir gildi aðeins til 1934, því að þá ætla bjartsýnir menn, að mesta kreppan verði um garð gengin og tilfinnanlegasta atvinnuleysinu af létt. — Óska ég, að málinu, að umr. lokinni, verði vísað til sjútvn. Meðflm. minn á sæti í þeirri nefnd og getur gefið nánari upplýsingar.