18.03.1932
Neðri deild: 32. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1292 í C-deild Alþingistíðinda. (11214)

172. mál, ölgerð og sölumeðferð öls

Hannes Jónsson:

Mér kom það ekki á óvart, þó að ýmsir hv. þm. hafi orðið til að halda því fram, að þetta frv. mundi verða til að auka vínflóðið í landinu, og er þetta þó ekki af því, að ég haldi, að þetta sé rétt, nema ef síður sé. Hv. þm. Ísaf. las hér upp tölur og skýrslur, sem áttu að sanna þetta, því að hann dró eina óskeikula setningu út frá öllum þessum tölum sínum, sem hljóðaði eitthvað á þá leið, að því meira, sem drukkið væri af öli, því meira væri og einnig drukkið af víni. Má auðvitað eins snúa þessari setningu við og segja, að því minni sé víndrykkjan sem öldrykkjan sé minni. En skyldi þetta nú vera tilfellið, t. d. með okkur Íslendinga? Það mun síður en að svo sé, og koma mér í hug í þessu sambandi hin alkunnu orð Snorra góða, þau er hann mælti á Alþingi kristnitökusumarið, þegar sú fregn var borin til þings, að jarðeldur stefndi á bæ Þórodds Eyvindarsonar á Hjalla, og heiðnir menn vildu kenna þetta goðagremi : „Um hvat reiddust goðin þá, er hér brann hraunit, er nú stöndum vér á?“ Hverju er þar um að kenna, að Íslendingar yfirleitt eru svo sólgnir í vín sem raun ber vitni, og ekki sízt hinn uppvaxandi æskulýður í landinu, úr því að öldrykkjunni er ekki um þetta að kenna? Því að þótt óáfengt öl sé að vísu framleitt í landinu, verður því þó varla um þetta kennt, og er enda eingöngu drukkið hér í Reykjavík og hinum stærri kaupstöðum, en þekkist hinsvegar ekki í sveitunum, og þar færist vínnautnin þó stöðugt í vöxt með heimabrugginu. Og það er reyndar fleirum en okkur sveitamönnunum, sem geðjast vel að „Höskuldi“ og öðrum ágætum sterkum drykkjum, sem framleiddir eru í sveitunum, því að kaupstaðarbúar munu ekki síður sólgnir í þessa drykki. (Rödd: Gjábakkabrennivínið er alviðurkennt). Já, ég gæti trúað, að einn og annar hv. þm. kynni að geta gefið upplýsingar í þessu efni. — Hv. þm. Ísaf. verður því að leita einhverrar annarar skýringar á þessu fyrirbrigði en að kenna þetta öldrykkjunni.

Hæstv. forsrh. undirstrikaði það um þau orð, sem hann sagði, að hann talaði sem þm., en ekki sem ráðh. Ég hefi nú samt mikla löngun til að svara honum einmitt sem ráðh., en ekki sem þm. Núv. stj. hefir setið að völdum frá því 1927, og allan tímann hefir hún haft nægan þingvilja til að gera allt, sem hún taldi nauðsynlegt að gera til þess að draga úr vínnautninni í landinu og halda áfengislögunum í gildi. Og ég efast ekki um, að stj. hefir gert allt, sem í hennar valdi stóð, til þess að draga úr böli áfengisnautnarinnar, því að þing eftir þing hefir hún fengið stuðning þingsins til að skerpa lögin svo mjög, að kalla má, að úr öllu hófi hafi keyrt, en þrátt fyrir þetta hefir ekkert áunnizt í þessum efnum, nema hvað eitthvað talsvert mun hafa dregið úr smyglun frá því, sem áður var, en samhliða því hefir líka bruggið í landinu stórum aukizt. Vil ég út frá þessu leggja þá spurningu fyrir hæstv. forsrh., hvort hann sé svo glaður yfir að sjá þessa innlendu framleiðslu þróast í landinu, að hann vilji ekkert gera til að stemma stigu fyrir henni, ef hægt væri. En ef hvorki er hægt að útiloka vínnautnina úr landinu né að stemma stigu fyrir hinni innlendu framleiðslu, væri það þá ekki einmitt í samræmi við stefnu hv. þm. Ísaf. og þeirra jafnaðarmanna að láta ríkið sjálft annast þessa framleiðslu? Hvað annað væri betra að gera að ríkisfyrirtæki en framleiðslu þessarar alóþörfu munaðarvöru? En ef menn skyldu nú ekki vilja ganga svo langt, væri þá ekki ráð að leyfa þessa voru og leggja á hana ríflegan skatt, svo að ríkissjóði stæði þó eitthvað gott af þessum hlutum?

Eins og ég gat um fyrr, hefir hví verið haldið fram, að ölið mundi kenna þjóðinni að drekka, ef leyft yrði. Ég hefi áður sýnt fram á það, að ölsins þarf ekki við um þessa hluti. Íslendingar kunna nú þegar að drekka, án þess að nokkurt öl hafi verið til að kenna þeim það. Þeir hafa einhvern veginn komizt upp á bragðið án þess. Hitt er annað mál, að Íslendingar yfirleitt kunna ekki að drekka eins og menn, og það hefir heyrzt úr ráðherrastól, að það þurfi að kenna þeim að drekka, svo að þeir drykkju ekki í óhófi, bæði sér til skaða og skammar, heldur svo, að þeir hefðu ánægju af drykkjunni. Og það er hverju orði sannara, að þessa er hin fyllsta þörf. Og skyldi ekki ölið einmitt verða til að kenna Íslendingum að drekka á þennan hátt? Ég fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að ölið mundi hafa sína miklu þýðingu í þessu efni.

Hæstv. forsrh. þótti sem það væri hið sama og að drepa kúna til að hafa hagnað af henni í svip að, fara nú að leyfa framleiðslu áfengs öls, og hv. þm. Borgf. var eitthvað að tala um, að verið væri að eitra fyrir menn eins og gert væri um hrafna, í svipuðu sambandi. Má þetta hvorttveggja til sanns vegar færast. Við viljum einmitt lóga nythæstu kúnni, þar sem er heimabruggið, sem þeir hæstv. forsrh. og hv. þm. Borgf. hinsvegar virðast hafa tekið ástfóstri við svo miklu, að þeir vilja ekkert gera til þess að hún veslist upp. Við viljum eitra fyrir hana með ölinu, því að við göngum þess fullvissir, að þegar mönnum gefst kostur á að drekka hæfilega áfengt öl, hverfur heimabruggið af sjálfu sér úr sögunni. Og heimabruggið er það böl, sem við verðum umfram allt að vinna gegn. Hv. þm. Borgf. var að tala um það, að á mjóum þvengjum lærðu hundar að stela, og skildist mér hann þar eiga við ölið, en ég fyrir mitt leyti er ekki í nokkrum vafa um það, að það er heimabruggið, sem mest eykur vínnautnina í landinu, og ég óttast ekki „hina mjóu þvengi“ ölsins, en geri mér hinsvegar góðar vonir um, að það geti útrýmt heimabrugginu.

Það hefir verið dregið í vafa, að af þessu frv. leiddi verulegan tekjuauka fyrir ríkissjóð. Má um það deila, og getur verið, að neyzla Spánarvína myndi minnka stórlega eða jafnvel hverfa alveg við tilkomu ölsins. En af því myndi auðvitað leiða stórkostlegar tekjur af ölinu, og þar við bættist, að fé fyrir drykkjarvörur færi ekki lengur út úr landinu. Þótt efnið til ölgerðar kosti nokkuð, veit hv. þm. Borgf., að það er svo sáralítið, að það kemur varla til greina.

Þetta frv. er frá minni hendi borið fram fyrst og fremst til að hindra hina miklu heimabruggun, sem nú er komin í hverja sveit og sumstaðar á hvern bæ. Ég ætla, og tel víst, að menn hefðu miklu meiri tilhneigingu til að sporna við þessum ófögnuði en nú er, ef hægt væri að fá gott áfengt öl. Til þess að eitthvað verði gert til að draga úr áfengisflóðinu, verður að fá fólkið í landinu til að starfa. Löggjöfin í landinu stendur mattlaus uppi gegn hverskonar áfengisbrotum. Jafnvel beztu bindindismenn eins og hæstv. forsrh. og hv. þm. Borgf. vita, að fjöldamörg lögbrot eiga sér stað, án þess að hreyfa legg eða lið til að ljósta þeim upp. Allir hylma yfir með lögbrjótunum, en enginn hreyfir sig gegn þeim. En yrði slík löggjöf sett, sem þetta frv. fer fram á, tel ég engan vafa á, að lögin yrðu frekar studd af þjóðinni en áður, og það yrði ef til vill mesti vinningurinn. Ég hefi enga trú á því, að öldrykkja leiði menn til óhófsdrykkju, hvað sem öllum skýrslum hv. þm. Ísaf. líður. Ölið hefir ekki kennt mönnum að drekka vín hér á landi. Fremur mætti snúa þessu við og segja, að það væri vínið, sem hefði kennt mönnum að drekka ölið.