02.03.1932
Efri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1439 í C-deild Alþingistíðinda. (11236)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Má ekki kjósa 6 menn í n., þannig að hv. 2. landsk. verði bætt við sem 6. manni? Á þann hátt yrði n. rétt mynd af þingdeildinni. Annars vil ég eins og áður mælast til þess, að hæstv. forseti fresti nefndarkosningunni til morguns.