04.04.1932
Efri deild: 42. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í C-deild Alþingistíðinda. (11248)

37. mál, stjórnarskipunarlög

11248Frsm. meiri hl. af hálfu Alþfl. (Jón Baldvinsson):

Þegar kjördæmaskipunarn. var sett á laggirnar á síðasta þingi og sjálfur hæstv. forsrh. tók sæti í henni sem fulltrúi Framsóknarfl., þá væntu margir þess, að nú mundi með starfi þessarar n. fást sæmileg úrlausn á þessu vandamáli. Svo hefir þó ekki orðið. Það var ekki liðið svo langt á starfstíma mþn. í kjördæmamálinu, þegar að vísu ekki fullkomnar, en þó allvíðtækar till. komu fram frá andstæðingum hæstv. forsrh. í n., og þó leitað væri allfast eftir við fulltrúa Framsóknarfl. í n. að koma fram með sínar till., sleit hún svo störfum, að ekki voru frá þeim flokki komnar neinar viðunandi till. í málinu. Það er nú fyrst, að komnar eru fram till. frá flokknum, þar sem eru þessar till., sem ætla má, að séu frá Frams.fl. og minni hl. stjskrn. í Ed. ber fram og komið hafa ýtrastar frá þeim flokki, opinberlega. Jafnlangt hefir hann aldrei gengið fyrri, og er ástæða til að þakka það, að hann skuli þó láta þetta undan. En þessar till. eru þó þess eðlis, að það er ekki viðbúið, að þeir flokkar, sem hafa krafizt þess, að kjördæmaskipunarmálið yrði nú leyst á viðunandi hátt, telji vel til fallið að samþ. þær. Eða a. m. k. vil ég segja það fyrir hönd Alþýðufl.

Hæstv. forsrh. byrjaði ræðu sína með því að lýsa áhrifum þeim, sem þetta mál hefði haft á kosningarnar 1931, og talaði um andstöðuna gegn makki sócialista og sjálfstæðismanna á þingi 1931 og svar þjóðarinnar við því. Þegar hæstv. forsrh. er að tala um andstöðu þjóðarinnar og svar þjóðarinnar, þá er það ekki meiri hl. þjóðarinnar, sem hann er að tala um. Það er ekki meiri hl. þjóðarinnar, sem hæstv. forsrh. getur meint, þegar hann talar um þjóðina, því úrslit kosninganna sýndu, að það var aðeins liðugur þriðjungur þjóðarinnar, sem ekki vildi breyta kjördæmaskipuninni, en nærri 2/3 heimtuðu breytingu. Og á bak við kröfuna um að breyta stendur þannig meiri hl. þjóðarinnar. 65 kjósendur af hverjum 100 heimta breytta kjördæmaskipun og að kosningarrétturinn verði almennur og jafn og réttur manna til áhrifa á skipun Alþ. hinn sami, hvar sem þeir eru búsettir, og 35 vilja hafa gamalt og úrelt skipulag. Þetta eru nú úrslit kosninganna hjá þjóðinni, þó að svo heiti, að á þingi hafi Framsóknarfl. fyrir núv. kosningatilhögun 23 þm. af 42. En það er fleira rangt en kjördæmaskipunin í þessu landi. Og það vill nú svo hlálega til með Framsóknarfl., að þó hann hafi mikinn meiri hl. þings og allt réttlæti mælti þannig með, að hann ætti að ráða hér á Alþ. einn og skilmálalaust, þá gerir hann það nú ekki. Og það er vegna þess, að gamalt og ranglátt ákvæði í stjórnarskipunarlögum landsins um samsetning annarar d. veldur því, að þó einhver flokkur ynni stærri sigur en þann, sem hv. Framsóknarfl. er nú að guma af, en stæði líkt og sá flokkur að öðru leyti, þá gæti hann samt ekki ráðið málum óskorað á Alþ. Það var því ekki allt sætt í þessum bikar, sem þjóðin rétti að Framsóknarfl. með þessum kosningasigri 1931.

Þegar tekið er tillit til þess, með hve miklu offorsi framsóknarmenn sóttu fram í kosningunum 1931, þá má segja, að það sé mikið látið undan af þeirra hálfu, þar sem þeir hafa lagt fram slíka till. sem þeir þó hafa gert, með brtt. Sérstaklega minnist ég þess úr kosningabaráttunni, að ýmsir frambjóðendur Framsóknarfl. — sumir eru nú orðnir þm. þess flokks — töluðu við bændur á þá lund, að það yrði nú líklega í síðasta sinn, sem bændur fengju að kjósa, ef þeir ekki veittu Framsóknarfl. brautargengi; það yrði þá í síðasta sinn kosið í kjördæmunum og sveitirnar fengju ekki lengur að ráða, því andstæðingarnir hefðu tekið höndum saman um það að fjölga þm. fyrir Rvík. Ég veit nú ekki, hvernig Framsóknarfl. ætlar að fara að koma til kjósendanna aftur og skýra þeim frá því, að hann hafi nú lagt til að tvöfalda þingmannatölu Rvíkur. Þetta er auðvitað ekki rangt, því Rvík á heimtingu á miklu meira. En það verður spaugilegt, þegar framsóknarmennirnir fara að rökræða þetta við bændur, sem þeir fullyrtu svo mikið við í fyrra. En úr því nú Framsóknarfl. hefir svipt sig möguleikunum til að geta blekkt kjósendur sína framvegis eins og 1931, væri það réttast fyrir hann að ganga nú hreint til verks, viðurkenna óskoraðan rétt kjósendanna og jafnrétti þeirra, hvar sem þeir búa á landinu, og lögleiða þetta jafnrétti. Því þetta krukk, sem gert er af Framsóknarfl. í kjördæmaskipunina í þá átt að leiðrétta misrétti, er nægjanlegt til að spilla þeirra rökum, eða réttara sagt blekkingum v ið bændur, þó það nægi ekki til að veita kjósendum fullan rétt.

Hæstv. forsrh. hefir skipt skoðun síðan 1931, og hv. 1. landsk. hefir skipt skoðun síðan 1930, því engum, sem les í ræðu hans í Alþt., blandast hugur um, að þm. fyrstur manna leggst á móti till. Alþýðufl. 1930 um að bæta úr ranglætinu í kjördæmaskipuninni og undirbúa nýja kjördæmaskipun. Það er ekki efamál, að öll ræða hans, orð hennar og andi, er í þá átt að leggjast á móti till., sérstaklega þeim atriðum — þó hann vilji skýra það öðruvísi nú —, að allir hafi jafnan kosningarrétt, hvar sem þeir búa á landinu, og landið sé eitt kjördæmi. Þeir hafa báðir skipt um skoðun, hv. 1. landsk. og hæstv. forsrh., og segi ég þeim það til hins betra, þó hvorugur hafi farið nógu langt eða viljað stíga sporið fullt.

Hæstv. forsrh. hélt því fram, að fræðsla um málið væri nauðsynleg. Ég er honum alveg sammála um þetta. Þess lengur sem það er rætt og þess meiri fræðslu, sem menn fá um það, þess fleiri verða sannfærðir um, að rétt sé að breyta stjskr. og kjördæmaskipuninni í það horf, sem felst í frv. og kjördæmaskipun þeirri, sem Alþýðufl. hefir stungið upp á. Ég hefi orðið var við það í umr. manna á milli, að það eru ekki fáir sjálfstæðismenn, sem telja einföldustu lausn þessa máls þá, sem felst í till. Alþýðufl., að gera allt landið að einu kjördæmi. Og sama er jafnvel í hópi framsóknarmanna, að þeir segja margir, að ef það eigi að breyta — engir eru þeir nú fúsir til þess, — en ef eigi að breyta, þá sé till. Alþýðufl. einfaldasta ráðið. Það er þannig fullvíst, að þess meira sem málið er rætt, þess meira sem almenningur fræðist um það, þess meiri skilning fær hann á því, að þegar breytt verður til, þá sé réttast að breyta til eftir till. Alþýðufl.

Hæstv. forsrh. vildi gera lítið úr þeim stjskr., sem settar væru í því umróti, sem varð eftir styrjöldina miklu, settar eftir byltingar. Ég veit, að hæstv. forsrh. er mikill sögumaður, og miklu meiri sögumaður en ég. En svo mikið held ég, að ég viti í sögu, að mér sé óhætt að segja það, að flestar eða allar stjskr. í heiminum séu settar upp úr byltingu. Ég held, að það mætti rekja sögu blóðugrar byltingar að næstum hverri einni og einustu stjskr. Hæstv. ráðh. ætti því ekki að gera lítið úr þeim stjskr., sem sprottnar eru upp úr byltingu. (Dómsmrh.: Af hverju var byltingin stöðvuð síðastl. vor?). Hæstv. dómsmrh. er nú farinn að dansa með í þessari byltingu, og hann verður að dansa lengur, þó hann sé máske nauðugur.

Maður heyrir oft hin þjóðlegu hvatningarorð: Ísland fyrir Íslendinga. Við Alþýðuflokksmenn viljum orða þetta dálítið á aðra lund; við viljum orða það á þessa lund: Ísland fyrir alla Íslendinga; þá er það rétt. Hæstv. forsrh. talaði nokkuð svipað áðan, þegar hann var að tala um að leggja þetta mál undir dóm þjóðarinnar, og kvaðst jafnvel mundu gera það. Ég vil biðja hæstv. forsrh. að standa við það og gera það bókstaflega; ég vil biðja hann að leggja þetta mál undir dóm þjóðarinnar — allrar þjóðarinnar, þá þarf ekki að kvíða úrslitum.