04.04.1932
Efri deild: 42. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í C-deild Alþingistíðinda. (11249)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil hefja mál mitt á því að láta í ljós ánægju mína yfir því, með hvaða svip hv. ræðumenn, 1. og 2. landsk., hafa borið þetta mál fram í ræðum sínum nú. Ég vil vona, að það spái góðri lausn á þessu máli, ef ekki er tekið tillit til annars en þess, sem verða má til að leysa það farsællega til lykta.

Ég vil þá víkja fyrst að hv. 2. landsk., sem síðast talaði, af því að við hann hefi ég færra að tala. Hv. þm. lét svo um mælt, að hann hefði búizt við, úr því ég hafði borið fram till. um að skipa mþn. í kjördæmaskipunarmálið, að þá fengist einhver endanleg lausn málsins. Og hann bætti við, að það hefðu engar till. komið frá okkur framsóknarmönnum í kjördæmaskipunarnefndinni. Út af þessu vil ég segja þetta: Um till. hv. 2. landsk. í n. sögðum við það, að það þýddi ekki að halda áfram að ræða þær, hvorki að hafa landið 1 eða 6 kjördæmi með niðurlagningu smáu kjördæmanna; það yrði aldrei samþ. Um hitt er það að segja, að við bárum fram í n. till., sem við héldum, að gæti verið grundvöllur til að vinna á, og við höldum ennþá, að geti orðið grundvöllur að endurskoðun kjördæmaskipunarinnar, eins og lagt var fyrir n. að vinna að. Við vildum halda við grundvöll núv. kjördæmaskipunar, en leitast svo við að koma á jöfnuði innan ramma þess grundvallar. En við fengum ekki einu sinni þennan grundvöll ræddan í n. Andstæðingarnir héldu fast við sínar till. Hv. sjálfstæðismenn héldu fast við sína aðaltill., og sérstaklega lagði hv. 1. landsk. aðaláherzluna á það, að grundvellinum undir þeim mætti ekki raska — það mætti ekki takmarka uppbótarsætin. Við fengum ekki einu sinni að tala við hv. andstæðinga okkar á þeim grundvelli, sem við höfðum lagt. Það gleður mig því mjög, að nú vilja hv. sjálfstæðismenn fallast á að takmarka þingsæti; það vildu þeir aldrei ganga inn á í n.

Þá vil ég leyfa mér að vekja athygli á, hvernig hv. andstæðingar tala um aðstöðu Framsóknarfl. gagnvart Reykjavík. Hv. 1. landsk. ásakar okkur framsóknarmenn fyrir það, að við viljum setja Reykjavík hjá, en hún beri þó mestar byrðarnar. Ég vil nú skjóta því inn í, að þó tölur þær, sem hann nefndi, kunni að vera réttar, sem ég hefi ekki athugað, og að það virðist þannig, að Reykjavík hafi borið svona miklar byrðar, þá er það alls ekki svo, heldur hafa byggðirnar úti um landið borið töluverðan hluta af þeim gjöldum, sem greidd eru inn í ríkissjóðinn í Reykjavík, vegna þess, að verzlunin gengur þar í gegn. Og þau hlunnindi eru óteljandi, sem Reykjavík nýtur frá ríkisheildinni.

Hv. 1. landsk. sagði, að Reykjavík fengi miklar byrðar, en lítið réttlæti. Hinsvegar sagði hv. 2. landsk., að með till. okkar framsóknarmanna væri stigið stórt spor til að bæta úr því misrétti, sem nú er í þm.tölu Reykjavíkur. Ég vil benda á, að það er ekki mikið samræmi í þessu, sem hv. andstæðingar okkar segja. Hv. 2. landsk. sagði, að það væri ekki samræmi í því hjá okkur, að við hefðum barizt á móti fjölgun þm. fyrir Reykjavík í fyrra, en legðum nú til, að þeim væri fjölgað upp í 8. Ég vil minna á þau ummæli, sem komu fram frá mér í fyrra, að Reykjavík ætti í raun og veru 4 landskjörnu þm. Það er því ekki neitt ósamræmi í þessu, að um leið og landskjörið er lagt niður fái Reykjavík þá uppbót, sem svarar til þeirra landskjörnu þingmanna, sem hún missir.

Þá er það hv. 1. landsk. Ég vil beina nokkrum orðum til hans, hv. formanns Sjálfstæðisfl., út af því, að hann sagði, að ég hefði farið rangt með orð hans á þinginu 1930. Nú skal ég sýna, að ég hafi verið að fara rétt með, með því að lesa upp úr þingtíðindunum kafla úr ræðu hans fyrir þessum sömu áheyrendum, svo að þeir geti sjálfir dæmt um, að ég hafi ekki farið rangt með. Og það mun sýna sig, að ef hv. þm. stendur á sama grundvelli nú og 1930, eins og hann lýsti yfir áðan fyrir alþjóð manna, og ef hann í till. sínum í ár vill vera í samræmi við þann grundvöll — ef hann vill standa við þá yfirlýsingu, þá munum við bera gæfu til að leiða þetta mál farsællega til lykta.

Nú skal ég fara með þetta, sem hann sagði, svo allur landslýður megi hlusta á. Í 302. dálki Alþt. 1930, D-deild, segir hv. þm:

„Þetta mál“ (nefnilega kjördæmaskipunarmálið) „hefir alloft legið fyrir Alþingi til úrlausnar, og fram til núv. kjörtímabils hefir ávallt verið notað sama úrræðið. Þegar kaupstaðir hafa verið orðnir svo fjölmennir, að það hefði verið áberandi ranglæti að láta þá ekki hafa áhrif á fulltrúaval til Alþingis, þá hefir verið bætt við þingmönnum fyrir þá“. Þetta hefir allt af verið úrræðið.

Í 303. dálki segir hv. þm. ennfremur: „Sjálfsagt eru til ýmsar leiðir til þess að bæta úr mestu misfellunum í þessu máli. Ég skal taka það skýrt fram, að ég álít, að ekki muni verða hægt að komast hjá að halda áfram eitthvað í sömu átt og áður og taka tillit til tilfærslu mannfjöldans á landinu. En að því er snertir till. á þskj. 468“ (nefnilega till. jafnaðarmanna), „þá er hún ákaflega einstrengingslega orðuð. Það er allhörð krafa, þetta, að kjördæmaskipunin skuli tryggja kjósendum jafnan rétt, hvar sem þeir búa. Í raun og veru er ekki hægt til fulls að fullnægja þeirri kröfu, nema með fyrstu aðferðinni, sem hv. flm. nefndi, að þm. séu allir kosnir á sama hátt og landsk. þm. eru nú, með hlutfallskosningum í einu lagi fyrir land allt“.

Þarna segir hv. 1. landsk., að það sé eina aðferðin, sem fullnægi þessari kröfu, svo að sú aðferð, sem hann nú ber fram, getur ekki fullnægt henni. Svo heldur hv. þm. áfram:

— Það mun vera stefnuskráratriði Alþýðuflokksins. En það er alls ekki svo, að þetta, að allir kjósendur hafi jöfn áhrif á skipun Alþingis, sé eina atriðið, sem horfa þarf á í þessu máli. Við verðum líka vissulega að horfa á hitt atriðið, að fámennum, afskekktum landshlutum er líka nauðsynlegt að eiga á þingi fulltrúa, sem er kunnugur þeirra hagsmunum og staðháttum og getur beitt sér fyrir þeirra málum.

Þetta er atriði, sem taka verður til greina, þegar kjördæmaskipunin er endurskoðuð, en þáltill. gengur alveg framhjá því“.

Þessum ummælum hv. 1. landsk. er ég algerlega sammála frá upphafi til enda. Hv. 1. landsk. segir ennfremur:

„Ég er þeirrar skoðunar, og ég hygg að tölurnar styðji þá skoðun, að af kaupstaðakjördæmunum sé það ekki nema Reykjavík ein, sem fyrir verulegu misrétti verður eða harðræði af núv. kjördæmaskipun“.

Ég er þessu alveg sammála, að það sé Reykjavík ein, sem verður hart úti. Hann segir enn:

„— — Til þess að í aðalatriðum sé nokkurnveginn sæmilegt hlutfall milli kaupstaða og sveitakjördæma, er það einungis þingmannatala Reykjavíkur, sem skýtur verulega skökku við“.

Þessu er ég alveg sammála. Hann segir enn:

„Ég hygg, að ekki verði hjá því komizt til lengdar að leiðrétta nokkuð þennan mun“.

Það er nú einmitt það, sem við viljum gera, við framsóknarmenn. Hann segir ennfremur:

„Þótt ég viðurkenni, að ástæða sé til að taka ýmislegt í kjördæmaskipuninni til athugunar, mun ég þó ekki geta fallizt á að greiða þeirri till. atkv., sem hér liggur fyrir. Hún er svo einstrengingsleg, að hún lítur aðeins á eina hlið málsins og útilokar ýmsar þær úrlausnir, sem hljóta að koma til skynsamlegrar yfirvegunar“.

Þessum ummælum hv. þm. er ég alveg sammála. Og svo á ég aðeins eftir að tilfæra merkilegasta, þýðingarmesta og eftirtektarverðasta atriðið. Það er niðurlag í 312. dálki D-deildar Alþt. 1930, og hljóðar svo:

„Hitt er óneitanlega annað atriði, sem grípur inn í þetta og gerir málið margþættara, að með núv. fyrirkomulagi á kjördæmaskipun verður hlutfallið annað milli þeirrar tölu kjósenda, sem fylgja hverjum flokki, og milli þeirrar tölu þm., sem hver þingflokkur fær. Til þess væri vitanlega sanngjarnt að taka tillit. En það á þó engan veginn heldur að vera eina atriðið, sem öllu ráði í málinu“.

Þetta segir hv. þm. skýrt og skorinort, að hvaða þm.tölu í hlutfalli við kjósendatölu hver þingflokkur fái, það sé ekki eina atriðið, sem öllu eigi að ráða í málinu. En nú ber þessi sami hv. þm. fram stjskrbreyt., þar sem hann leggur til, að þetta, höfðatala kjósendanna, sé eina atriðið, sem öllu ráði.

Nú hefir hv. þm. sagt, að hann stæði enn við skoðanir sínar frá 1930, og ég skal ekki vefengja það að óreyndu, þó hann nú hafi borið fram till., sem fer í bága við þær, því það er ekki svo mjög að marka slíkar till., sem bornar eru fram, þegar kapp er hlaupið í stjórnmálaflokkana um eitthvert mál. En úr því hv. þm. segir, að þetta eigi ekki að vera eina atriðið, sem öllu eigi að ráða í málinu, þá beini ég því til hans, hv. 1. landsk., formanns Sjálfstæðisfl., að hann beri nú fram till. um það, hvað það sé annað, sem ráða á í þessu máli, og að stjskr. sjálf beri það með sér, svo að hv. þm. láti það nú ekki vera eina atriðið, þetta, sem hann sagði 1930, að ætti ekki að vera eina atriðið. Ég vil þess vegna vona, að áður en þetta mál verður afgr. komi fram till. í þessa átt frá hv. þm. Ég vil vona, að það verði samkomulag milli flokkanna um þá till., að það verði ekki eina atriðið, sem öllu ráði í þessu máli, sem hv. þm. lagði áherzlu á 1930, að ekki ætti að vera eina atriðið, og sem ég er honum algerlega sammála um.

Út frá þessu vil ég taka undir þau ummæli hv. 1. landsk., að það séu hinir verstu menn, sem nú vilja stofna til ófriðar og hindra það, að þetta mál verði leyst, sem er eitt af mestu vandamálum þjóðarinnar. Ég get líka tekið undir þau ummæli, sem hv. þm. beindi til mín um það, að það hvíldi mikil ábyrgð á mér um það, hvort mér tækist að leysa þetta mál. Ég veit þetta mjög vel. Ég hefi lýst yfir því, að við framsóknarmenn erum reiðubúnir til samvinnu við hvaða flokk sem er um að leysa þetta mál. Og ég mun standa við það. En ég beini því þá líka til hv. 1. landsk., að hann og hans flokkur finni til ábyrgðar á því að leysa slíkt mál sem þetta, og gera það ekki á þann hátt, að hindra fulltrúa flokksins frá því að víkjast undir nauðsyn þjóðarinnar um afgreiðslu þeirra mála, sem þm.-skyldur þeirra eru fyrst og fremst að afgr. — að sjá ríkinu farborða fjárhagslega.