05.04.1932
Efri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í C-deild Alþingistíðinda. (11254)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Magnús Torfason:

Það er með hálfum hug, að ég stend hér upp, eftir að höfuðskepnurnar þrjár brugðu sér í algleymingi á leik hér í d. í gær. Ég geri það af því, að ég slysaðist til að bera fram brtt. í málinu, og verð að fylgja þeim úr hlaði með fáum orðum. Ég skal lýsa því yfir, að ég ber brtt. fram einn þm. í þessari hv. d., og veit ekki, hvort nokkrir fleiri fylgja mér þar. En hitt veit ég, að mikill hluti þjóðarinnar stendur á bak við þær; mér er nær að halda, að mikill meiri hl. þjóðarinnar utan Reykjavíkur sé þeim samþ. En það er full von, að svo sé, því að þessar till. eru fyllsta fylling réttlætisins í þessu máli.

Það eru vitanlega ýmsar ástæður til þess, að ég ber þessar till. fram. Í fyrsta lagi eru þessar till. í fyllsta samræmi við síðustu kosningar og skipun Alþ. nú. Við vitum allir, hvernig þetta mál er til komið. Það var fitjað upp á því, að krafizt var, að þm. Reykv. yrði fjölgað. Á því ætluðu andstæðingar stj. að vinna kosningarnar. En það fór á aðra leið, sem kunnugt er. Þeir biðu hinn herfilegasta ósigur. Ég geri a. m. k. ráð fyrir því, að tilgangur þeirra hafi ekki verið sá, að fækka sínum þm., en fjölga þm. stjórnarflokksins. En þessar till. mínar eru ekki aðeins í samræmi við skipun Alþingis, heldur eru þær líka í fullu samræmi við gerðir þingsins í slíkum málum frá því fyrsta. Þegar kjördæmaskipunin, fyrir breytingar tímans, hefir ekki þótt orðin sem réttlátust, þá hefir stefnan ætíð verið sú, að fjölga þm. þar, sem mestar voru kröfurnar til og mest þörfin á. Og í þessum till. mínum, þar sem farið er fram á að bæta við þm. á Siglufirði, gera Gullbringu- og Kjósarsýslu að tvímenningskjördæmi og láta Reykjavík fá 8 þm., er fylgt sömu stefnunni, sem verið hefir í þessum málum frá upphafi. —

Ein ástæðan til þess, að ég her fram þessar brtt. er sú, að í till. stj. er kjördæmaskipunin ákveðin í sjálfri stjskr. Og þegar kjördæmaskipunin er fest við slíkt akkeri, má ekki minna vera en að sú skipun þessara mála, sem þannig er rígbundin, verði höfð eins réttlát og hægt er. Auðvitað mun tíminn aflaga hvaða kjördæmaskipun, sem nú væri sett, meira og minna. — En hvað viðvíkur þeim 4 þm., sem bæta skal við Reykjavík, er það að segja, að þar er ekkert annað gert en að játa Reykjavík fá þá þm.tölu, sem hún nú þegar hefir. Reykjavík á 4 landsk. þm. með húð og hári, og þeir gætu ekki staðið betur í ístaði borgarinnar, þó að þeir væru kjörnir þm. hennar. (PM: Hverja af landsk. þm. á Reykjavík ekki?). Ég get svarað því strax. Það eru landsk. þm. Framsóknarfl. Þeir þm. hafa það auðsjáanlega alltaf á tilfinningunni, að þeir séu kosnir fyrir landið allt, en það er ekki hægt að segja um hina með neinum sanni.

Ég sagði áðan, að andstöðuflokkar stj. hefðu farið mikla hrakför í síðustu kosningum. Og það var einmitt á kjördæmaskipunarmálinu, sem þeir töpuðu. Í síðustu kosningum var barizt um það, hvort atkvæðatalan ein ætti að ráða úrslitum kosninga eða ekki. Það bar því fremur á þessu, þar sem tveir flokkar, annars andstæðir, sameinuðust í þessari baráttu fyrir höfðatölunni, en það er öllum vitanlegt, að öll þessi samvinna sjálfstæðismanna og jafnaðarmanna á rót sína að rekja til þess, að jafnaðarmenn náðu engu þingsæti við landskjörið 1930, sem þeir þó áttu rétt á. Eftir sinni flokkstölu eiga jafnaðarmenn rétt á að hafa a. m. k. 1 þm. af 6 landsk. þm. En sökum þess að það ráð var upp tekið að tvískipta þessari kosningu, fór svo, að þeir fá engan. — En því meiri varð ósigur þessara sambandsflokka 1931, sem það er alveg víst, að ekkert annað en krafa þeirra um alræði höfðatölunnar veitti Framsóknarfl. sigur.

Ein ástæðan til þess, að ég ber fram mínar brtt. er sú, að þingflokkur framsóknarmanna og stjórn hans hefir enga heimild frá kjósendum sínum til þess að ganga feti framar en gert er í þessum till.

Í kosningunum 1931 var það víða á þingmálafundum tekið berlega fram, að ekki mætti ganga lengra en þetta. Og á ýmsum þingmálafundum í vetur hefir það verið beint tekið fram af kjósendum Framsóknarfl., að þeir vilja ekki, að gengið sé lengra. Og þessar óskir hafa ekki aðeins komið frá kjósendum Framsóknar. Nei, þingmálafundargerðir frá einu íhaldskjördæminu eftir öðru hafa að geyma samskonar áskoranir. — T. d. get ég nefnt, að við þm. Árn. bárum fram á þingmálafundi till. um að halda fast við núv. kjördæmaskipun, en kjósendum þótti það ekki nógu tryggilegt, heldur bættu við ákvæði, þar sem bannað var að fara lengra í breytingum en gert er hér í mínum brtt. — Og það er ekki aðeins í framsóknarkjördæmi eins og Árnessýslu, að þetta gerist. Við vitum öll, að Rangæingar hafa óskað, að þetta mál yrði ekki tekið upp á þessu þingi.

Þá má nefna yfirlýsingu frá Ísafirði, sem hæstv. fors. gat um í fundarbyrjun í gær. Þar höfðu 365 kjósendur skorað á Alþ. að breyta kjördæmaskipuninni í það horf, að höfðatalan eigi að ráða. En við kosningarnar í vor greiddu 887 kjósendur atkv. í þessu kjördæmi. Af þeim atkv. sem þar voru greidd, á Framsóknarfl. sama sem ekkert. Mestöll þessi atkv. hafa verið greidd íhalds- og jafnaðarmönnum í sumar. En þó að nú hafi verið gengið hús úr húsi og hváð eftir atkv. um þetta mál, fást ekki fleiri en 365 undirskriftir. (JónÞ: Það komu fleiri undirskriftir frá Ísafirði). Ég verð að fara eftir því, sem nú liggur fyrir, og sé enga ástæðu til þess að leggja nokkuð upp úr spádómi hv. 1. landsk. Hann hefir yfirleitt ekki reynzt spámaður í sínu föðurlandi! En þessi smölun á Ísafirði hefir auðvitað gengið svona illa af því, að í kosningum fylgja menn oft sínum flokki, án þess að vera sammála stefnu hans í öllum atriðum. Oftast þarf kosningu, eina eða fleiri, til þess að menn segi alveg skilið við sinn gamla flokk. En þetta dæmi frá Ísafirði sýnir ljóslega, að fleiri standa á bak við aðstöðu Framsóknarfl. í þessu máli en kosningarnar síðastl. sumar sýndu.

Enn ein ástæða til þess, að ég ber fram brtt., eru þær ótal raddir, úr öllum kjördæmum landsins, nema kannske Reykjavík, um það, að ekki megi fjölga þm. Það var tekið skýrt fram á fleiri en einum þingmálafundi í Árnessýslu, að kjósendur lögðu blátt áfram bann við því, að þm. yrði fjölgað. Þessi skoðun á fullan rétt á sér. Hér standa að meðaltali 2600 kjósendur á bak við hvern þm., og er það miklu minna hlutfallslega en í nokkru öðru landi.

Ég álít það því engan ágalla á brtt. Framsóknar, að tala þm. er þar ákveðin með hámarkstölu. Það lít ég á sem verulegan kost. Ég er sannfærður um, að það sé almenn þjóðarkrafa, að þm. sé ekki fjölgað um of.

Andstæðingarnir hafa sérstaklega í þessu máli hrópað á réttlæti, réttlæti!, og reynt að koma því inn í þjóðina, að þetta væri svo mikil réttlætiskrafa, að á móti henni yrði ekki staðið. Og í sambandi við það hafa þeir látið svo, sem það væri einhver goðgá, einhver glæpur að verða ekki við slíkum kröfum þegar í stað. Eins og sakir standa eftir kosningarnar síðast, finnst mér þetta vera að bera sakir á þjóðina alveg að óverðugu. Það er alveg víst, að þessi þjóð er eins næm fyrir réttlæti eins og nokkur önnur þjóð, undir vissum kringumstæðum kannske næmari en aðrar þjóðir, m. a. blátt áfram af því, hve fáir menn eru í þessu landi, af því, hve hérna er allt smátt, sem þjóðin hefir um sig, svo að jafnvel þjóðarréttlætisins gætir í beinum smámunum. Sem dæmi upp á það má nefna, að fyrr og síðar hefir veiting jafnvel smáembættis, ef hún hefir ekki þótt réttlát, vakið óánægju allrar þjóðarinnar. Jafnvel veiting smáprestakalls hefir orðið til þess, að rignt hefir niður mótmælagreinum. Það er því áreiðanlega ekki rétt hjá hv. andstæðingum stj. að leggja mikið upp úr réttlætinu í þessu máli. Þeir, sem ætluðu að vinna, töpuðu í kosningunum. Það er þvert á móti ákvæðið um alræði höfðatölunnar, sem er ekkert réttlæti, heldur argasta ranglæti, og þær aðferðir, sem notaðar hafa verið til að knýja fram þessar kröfur, eru þess eðlis, að þær sýna fyllilega, hvað á bak við þær liggur. Það eru ýmsar ástæður til þess, að talnalögmálið getur ekki alltaf ráðið í öllum hlutum. Fyrst er nú það, að áhrif kjördæmanna eru ekki jöfn. Dreifðir kjósendur standa miklu verr að vígi en þeir, sem búa í þéttbýli; þá vantar það afl samtakanna, sem hinir hafa. Dreifða kjósendur vantar það vopn, sem menn í þéttbýli hafa í höndum — þá vantar blaðakost og yfirleitt þá menningu, sem fjölmennið hefir og þarf til þess að geta ráðið yfir atkvæðum manna. Og eftir alþekktu lögmáli er von, að svo sé með þá hluti, sem lífrænir eru, þar sem sama lögmál gildir um dauða hluti. Þar stendur það óraskanlegt, eins og menn vita, að 8 súlur, sem standa á við og dreif, hafa ekki sama burðarmagn og 8 sementssúlur, sem standa þétt saman. Hv. 1. landsk. ætti að skilja þetta lögmál, að 8 sementssúlur, sem standa þétt saman, hafa ekki aðeins jafnmikið burðarmagn og 8 súlur, sem standa á við og dreif, heldur jafnvel 8X8 meira burðarmann. (JónÞ: Það var gott, að ég lærði ekki verkfræðina hjá hv. 2. þm. Árn.). Ég er hræddur um, að hv. 1. landsk. reikni hér skakkt eins og oftar burðarmagnið. Hin dreifðu kjördæmi hafa heldur ekki öll sömu áhugamál. Eitt kjördæmið hefir þetta áhugamál, annað hitt. Þess vegna gengur kjördæmunum úti á landi svo illa að koma fram sínum málum, jafnvel þó réttlát og gagnleg séu.

Þetta, að höfðatalan eigi ekki að ráða, er, eins og bent var á í gær, viðurkennt nýlega af frændum okkar Norðmönnum, en þeir eru sú þjóðin, sem við líkust kjör á að búa og við. Aðeins er sá munurinn, að það er miklu meiri ástæða til þess fyrir okkur en Norðmenn að gæta þess, að höfðatalan ein ráði ekki. Nú, og ég gæti vitnað í stjórnmálamann með einni af merkisþjóðum heimsins; hann getur kannske ekki jafnazt á við hv. 1. og 2. landsk., en hann þótti nú samt góður í sínu föðurlandi. Þessi stjórnmálamaður hét Leon Gambetta. Hann var einn helzti styrktarmaður franska lýðveldisins, sem stofnað var eftir 1870. Það er hans ráð, að öldungaráð franska þingsins yrði svo skipað, að menn úti um land, og þá sérstaklega bændur í sveitunum, ráði meiru en þeir áttu rétt á eflir fólksfjölda. Og hans skipulag hefir reynzt vel. Hann var hræddur við París. Hann var hræddur við, að borgarmenn þar, sem eru skjótir til nýræða, mundu geta þar í þéttbýlinu og í æsingu tekið ályktanir, sem ekki væru heppilegar fyrir landið; þess vegna barðist hann fyrir því, að öldungaráðið sé svo skipað sem ég nú hefi bent á.

Ég heyrði það í gær hér í hv. d., og þó enn betur og skýrar í hv. Nd., að það hefði verið Framsóknarfl., sem hefði eiginlega verið byltingaflokkurinn í þessu máli, að hann hefði stofnað til ófriðarins. Ég var satt að segja alveg hlessa, þegar ég heyrði þetta borið fram. Það var sannarlega ekki Framsóknarfl., sem var með neinar byltingaráðstafanir; Framsóknarfl. fór alveg löglega og þinglega að í þessu máli. Ástæðan til þingrofsins var sú, að hinir flokkarnir voru búnir að koma sér saman um á því þingi að skera sér sneið, að fjölga þm. fyrir Reykjavík. Þetta átti ekki að bíða næstu kosninga. Nei, þeir vildu fá þessa sneið þá þegar á því þingi, og þannig raska jafnvæginu í þinginu. Og þetta ætluðu þeir að gera með hjálp manns, sem var studdur af Framsóknarfl. til kosninga 1927. Og þar sem sá maður, sem studdur var af Framsóknarfl. til kosninganna 1927, hafði haft bein svik í frammi við þann flokk á því þingi, með því að koma með till. um og hjálpa til, að þm. Reykjavíkur yrði fjölgað, þá æxlaðist það nú svo til, að rás viðburðanna sýndi það fullkomlega, að hann hafði ekki haft neinn rétt til þessa. Það fór enginn þm. hraklegri för í kosningunum en einmitt þessi þm. Og þingmálafundir í hans kjördæmi hafa lýst því yfir, að þeir vilji ekki, að þetta mál komi til neinna úrslita á þessu þingi. Ég get fullvissað hv. andstæðinga um, að ef þetta hefði ekki verið gert, ef ekki hefði átt að raska jafnvæginu milli flokkanna fyrir kosningar, þá hefði þingið aldrei verið rofið. Þetta gaf stj. rétt til þess að aftra því með öllum löglegum ráðum, að slíkt ætti sér stað, nema kjósendur hefðu samþ. að svo skyldi vera.

Nei, byltingin, hún er nú ekki framsóknarmegin. Það verður aldrei skafið af andstöðuflokkunum, að þeir eru byltingamennirnir. Og sú bylting, sem þeir voru að bröltast með þá, var að vísu endemi að mörgu leyti, en einsdæmi líka að einu leyti, sem ég hefi ekki heyrt tekið fram enn. Hún var einsdæmi að því leyti, að það lá ekkert hagsmunamál á bak við þessa byltingu, ekkert eitt einasta hagsmunamál. En ég veit ekki til þess, að bylting hafi verið gerð í nokkru landi svo, að ekki hafi raunveruleg hagsmunamál á bak við hana legið. Því það er víst, að kaupstaðirnir, og Reykjavík sérstaklega, hafa alls ekki orðið útundan; þvert á móti eru það hin dreifðu kjördæmi, sem hafa átt í vök að verjast og ekki getað enn, þrátt fyrir þann liðsauka, sem þau hafa fengið í bændaflokknum, komið sínum málum fram. Nú, og hitt er líka jafnvíst, að þessi Reykjavíkurbylting átti sér enga rót utan Reykjavíkur; það hefir ekki heyrzt ein einasta rödd úr kjördæmunum utan Reykjavíkur um, að þau hafi séð ofsjónum yfir því, þó sum smæstu kjördæmin, ekki að kjósendatölu eða manntali, næðu meðaltalinu. Ég hefi ekki heyrt neina rödd um það úr kjördæmunum utan Reykjavíkur. Hitt er annað mál, að einstaka kjördæmi hefir viljað fá kosningarrétt fyrir sig, þegar það hefir átt heimtingu á því og þurft þess með. Nei, það er víst, að hérna var ekkert annað, sem berjast átti og barizt var um, en það, hvort bola ætti bændastj. frá völdum eða ekki. Fulltrúar kauptúnanna og Reykjavíkur gátu ekki þolað, að bændastj. sæti lengur við völd, og þeir örvæntu um sigur, um að þeir mundu geta sigrað Framsóknarfl. og bændaflokkinn. og þess vegna höfðu þeir fundið upp á þessu brölti og fóðrað það með höfðaréttlætinu.

En það er líka önnur ályktun, sem þjóðin getur dregið af þessu. Sjálfstæðisfl. er í raun og veru enginn byltingaflokkur, og a. m. k. er hv. 1. landsk. vissulega í eðli sínu enginn byltingamaður, og þess vegna eru vitanlega einhverjar sérstakar ástæður til þess að til þessa úrræðis, þessa örþrifaráðs var tekið. Og þessar sérstöku ástæður eru þær, að þessir flokkar ekki aðeins fundu, að traust þeirra hjá þjóðinni hafði farið smáminnkandi, heldur fundu þeir líka, að svo mundi verða áfram; þeir höfðu misst alla von um að ná aftur því trausti, sem þjóðin hafði haft á þeim áður. Þeir höfðu misst alla von. Og ég fyrir mitt leyti skil þetta vel. Hegðun þeirra og framkoma og þingstörf að undanförnu voru ekki þannig löguð, að þau gætu aukið þeim flokkum traust. Og nú býst ég ekki við, að þeir hafi neitt upp úr brölti sínu, og því vil ég gefa þeim heilræði, svo að þeir komist út úr ógöngunum og til þess, að þessir flokkar komist í meiri hl., og til þess, að starf þingsins verði betra og heillaríkara fyrir þjóðina. Ég gef flokkum þessum það ráð, að þeir skuli vanda betur ráð sitt en þeir hafa gert hingað til; að þeir skuli meta meira heill alþjóðar en flokkshagsmuni. Ef þeir gera þetta, þá er ég ekki í vafa um, að þeim muni vel farnast. Og ég fyrir mitt leyti, ef þeir gera þetta, hefi ekkert á móti, að þeir komist til valda, því að það er ábyggilegt, að vel fer á því, að um það skipti öðruhverju, hverjir fára með völd meðal þjóðanna.

Að síðustu vil ég í þessu sambandi benda á, hvað það er, sem þessir flokkar heimta af meirihlutaflokknum í þinginu. Það, sem þeir heimta af honum, er blátt áfram það, að hann eigi að gera kviðristu á sjálfum sér. Ef hann ekki ristir sjálfan sig á kviðinn, þá ætlum við að gera það. Það er þetta, sem þessir flokkar segja, og ég fyrir mitt leyti gengst ekki upp við slíku, og kalla það lítilmennsku að láta undan slíku.

Það þótti hneyksli áðan — það hneykslaði suma menn —, að ég kallaði þessar till. hinna sameinuðu flokka fullkomið ranglæti. Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um það. Aðeins vil ég benda á, að það má oftast meta málstaðinn eftir þeim meðulum, sem notuð eru til að koma honum fram — eftir þeirri bardagaaðferð, sem höfð er við það. Nú hefir hv. 1. landsk. á þskj. 300 borið fram breyt. við 1. um kosningar til Alþingis, sem eru þess eðlis, að minni hl. er gerður jafn meiri hlutanum. Ég man ekki eftir að hafa séð neina till., sem er eins full af ranglæti og þessi till. og fer eins greinilega í bág við alla þá stefnu, sem þessir flokkar þykjast vera að berjast fyrir, lýðræðisstefnuna. Þessi till. er samboðin því, sem fram hefir komið, ekki aðeins í bænum og blöðunum, heldur einnig á þingi. Þessir flokkar eru með hótanir dagsdaglega gagnvart stj. svo að segja í hverju máli, hótanir um kúgun á þann hátt að leggja niður sína þegnskyldu gagnvart þjóðfélaginu sem þingmenn. Þá var talað fagurlega um það hér í gær af hv. sjálfstæðismönnum, að það væri ekki ætlunin að stofna til ófriðar milli kaupstaða og sveitakjördæmanna, og vil ég fyrir mitt leyti vísa þessu til föðurhúsanna. Framsóknarfl. hefir sýnt það í hverju máli, að hann hefir reynt að uppfylla sanngjarnar og réttmætar óskir kaupstaðanna í hvívetna. Ég get a. m. k. sagt það hvað snertir mitt kjördæmi, að það er langt frá því, að íbúar þess vilji egna til ófriðar gegn Reykjavík, heldur þvert á móti, þeir óska samkomulags við Reykjavík, jafnvel þó það kjördæmi sé máske allra sárast leikið af völdum Reykjavíkur.

Ræður þær, sem fluttar voru hér í hv. þd. í útvarpið í gær, voru ekki fyrst og fremst rökræður, heldur voru þær miklu fremur einskonar þingmálafundarræður, fluttar fyrir heiðraða kjósendur. M. a. gat hv. 2. landsk. þess, að kjörorð sitt og síns flokks væri „Ísland fyrir alla Íslendinga“. Ég get ekki neitað því, að þetta er góður endir á ræðu, en ég vil þó segja hv. þm., að framferði hans í þessu máli er á þá leið, að hann ætlast ekki til þess, að Ísland verði fyrir Íslendinga, heldur að allt Ísland verði fyrir Reykvíkinga.

Þá var það hv. 1. landsk., sem gat um það í ræðu sinni í gær, að hann þættist vita um frekari tilboð frá hendi einstakra manna innan Framsóknarfl. um breytingar í kjördæmamálinu heldur en þær, sem koma fram í brtt. okkar. Ég veit ekki, hvaða heimildir hann hefir fyrir sér í þessu atriði; ég þekki ekki þessar till. innan Framsóknarfl. og vil alls ekki trúa því, að þær séu til, því með þessu er sagt, að einstakir menn í Framsóknarfl. séu með undirmál gegn sínum flokki og að auk þess séu þeir slíkir bjánar eða kjánar að fara að gera ný tilboð, áður en svar er fengið við því tilboði, sem fram hefir verið lagt frá hendi flokksins. Slíkt væri vitanlega svo mikill pólitískur barnaskapur, að það væri ekki að eins sjálfsagt að gera slíka menn flokksræka, heldur einnig þingræka.