13.04.1932
Efri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í C-deild Alþingistíðinda. (11260)
37. mál, stjórnarskipunarlög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Við framsóknarmenn gerum ráð fyrir að taka lítinn þátt í umr. um þetta mál, þótt hv. 1. landsk. viki lítillega að till. okkar, sem bornar voru fram af hálfu Framsóknarfl. við 2. umr. Þær till. hefir Ed. nú fellt. Við gerum ekki ráð fyrir, að nein stefnubreyt. verði við þessa umr., og af því er engin till. borin fram um þetta mál af hálfu Framsóknarfl. Hinsvegar geri ég ráð fyrir því, að það verði þannig frá því gengið af hálfu flokksmanna, að séð verði um, að málið komist til Nd., til þess að það fái þar frekari meðferð og verði rætt þar nánar.
Út af ummælum um hv. 1. landsk., sem ég hafði við 2. umr., þá er það rétt, að ég mun hafa sagt, að hann hafi verið kosinn á þing 1922, en það er ekki rétt. Það var 1921. En efnislega breytir það engu um það, sem ég sagði um afstöðu hv. þm. undanfarin ár. Hann var 1919 í Heimastjórnarfl. og í hinum kosningunum hefir hann tekið þátt undir þessum ýmsu merkjum.