13.04.1932
Efri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í C-deild Alþingistíðinda. (11261)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. meiri hl. af hálfu Alþfl. (Jón Baldvinsson):

Í grg. stjskrfrv., sem ég er meðflm. að, er minnzt á nokkur atriði, sem mig greini á um við aðra flm. og hafi þar sérstöðu, sérstaklega um skipun þingsins, og einnig annað atriði, sem þar er nefnt — um að skilyrði fyrir kosningarrétti sé 5 ára heimilisfesta í landinu. Áskildi ég mér að vísu sérstöðu um það atriði, en ég ætla, að ég megi þó fullyrða, að hv. 1. og 4. landsk. hafi einnig verið sammála um, að það atriði mætti vel missa sig úr stjskr. Ég gerði því hálft í hvoru ráð fyrir að koma með brtt. um a. m. k. annað þessara atriða, en það hefir ekki orðið fyrr en nú.

Ég hefi ekki ráðizt í að koma með brtt. um deildaskiptinguna í þinginu, og það af þeirri ástæðu, að ég vildi ekki blanda inn í deiluna um kjördæmaskipunarmálið öðru atriði, sem gat e. t. v. á einhvern hátt truflað sjálft deilumálið. En þó er ég eins og fyrr þeirrar skoðunar, að rétt væri, að engin deildaskipting ætti sér stað, en að þingið starfaði allt í einni málstofu. Tel ég það fyrirkomulag einfaldara og hentugra en nú er. Ég hefi ekki komið með þessa till. og efast um, að hún komi fram í þinginu, ef allt fer skaplega um þetta stjskrfrv., til þess að stofna því ekki í hættu þess vegna, ef hitt næðist, sem er aðalatriði stjskrfrv., að tryggja jafnrétti kjósenda í landinu og flokkslegt réttlæti á þingi. Þetta, sem ég hefi minnzt á, lýtur að þeim tveim breyt., sem hreyft var í grg. frv., en síðan hefir það skeð, að fram hefir komið frá meðflm. mínum að stjskrfrv., hv. 1. og 4. landsk., brtt. við 1. gr. stjskrfrv., þar sem takmarka á tölu þm. Af þessum ástæðum áleit ég rétt, að þá kæmi einnig til atkv. till., sem ég hafði stungið upp á í mþn. um tiltekna kjördæmaskipun, sem er þannig vaxin, að hún er fullkomlega í samræmi við það, sem er aðalatriði 1. gr. stjskrfrv., að Alþ. sé svo skipað, að hver þingflokkur hafi þingsæti í samræmi við atkv.tölu, sem greidd er frambjóðendum flokksins við almennar kosningar. Áður en ég vík að þessum till., sem ég þarf þó ekki að gera náið, vildi ég aðeins segja álit mitt um till. hv. 1. og 4. landsk., því að þeir hafa nú gert grein fyrir henni. Skilst mér hún samt koma í bága við það, sem er í 1. gr. stjskrfrv., ef hún yrði samþ. og það fyrirkomulag, sem þeir hafa stungið upp á í till. sínum í mþn., væri lagt til grundvallar eða gengi fram í öllum aðalatriðum. En því er verr, að sem stendur er ekkert samkomulag um kjördæmamálið sjálft né heldur um stjskr. Þótt hv. 1. landsk. segi nú, að stjskrfrv. sé ekki kjördæmaskipunarmál, þá er það auðvitað að forminu til rétt, en efnislega ekki, því að stjskrármálið eins og það liggur nú fyrir er líka kjördæmaskipunarmál í eðli sinn. Ef ekki næst samkomulag um sjálft stjskr. málið, þá er heldur ekki fengið samkomulag um kjördæmaskipunarmálið. Það er fyrsta skrefið, þótt samþykkt þessara mála geti ekki fylgzt að. Ég geri ráð fyrir því, að þegar komið væri samkomulag hjá meiri hl. þings um einhverja stjskrbreyt., væri jafnframt fengið samkomulag um tiltekna kjördæmaskipun, sem ætti að samþ. þegar slíkt stjskrfrv. yrði endanlega samþ., að afstöðnum kosningum. Mér finnst því, að á þessu stigi málsins hafi verið óþarfi af sjálfstæðismönnum að koma með þessar takmörkunartill., sem gera frv. óaðgengilegra. Ég veit að vísu, að þeir hugsa sér þá breyt. á till. sínum, í stað þess, sem er ákveðið, að sá sé kosinn, sem flest fær atkv., eins og nú er. (JónÞ: Það stendur hvergi í lögum). Jæja, það ætti þá að framkvæmast þannig eftir 1., svo að ég sé ekki mikinn mun á því. Þeir geta hugsað sér, ef slík takmörkun væri, að sá yrði ekki ávallt kosinn, sem flest fengi atkv., ef fullnægja ætti þeim réttlætiskröfum, sem 1. gr. stjskrfrv. gerir ráð fyrir. Ég er hræddur um, að aldrei myndi nást samkomulag um að ákveða svo í kosningalögum, að þótt einhver frambjóðandi í tilteknu kjördæmi fengi mikinn meiri hl. atkv., þá væri hann samt ekki kosinn. Slíkt myndi stríða á móti réttlætishugmyndum kjósenda þeirra, er þar ættu hlut að máli, svo að aldrei yrði inn á þetta gengið, þótt segja mætti, þegar litið er á landið í heild, að þetta gæti verið réttlátt. Ég hefi ekki trú á, að slíkt samkomulag náist, og þá er þessi takmörkun, sem gerð er í stjskrfrv. af hv. 1. og 4. landsk., mjög verulegur ágalli á frv. í mínum augum. Það er af þessum ástæðum, að ég hefi nú borið fram brtt. við stjskrfrv. í tvennu lagi. 1 fyrsta lagi að taka inn í frv. kjördæmaskipun, þar sem landið er gert allt að einu kjördæmi, eins og segir á þskj. 337. Með því móti er í sjálfu stjskrfrv. hægt að ákveða tölu þm., og ég hefi stungið upp á því, að á Alþ. eigi sæti 42 alþm., kosnir hlutbundnum kosningum. Þótt þessi tala sé ákveðin í stjskr., þá er það svo, sem hv. 1. landsk. viðurkenndi í sinni ræðu, að það brýtur á engan hátt í bág við þann tilgang, sem liggur til grundvallar l. málsgr. stjskrfrv., sem fyrir liggur, enda tekið upp í brtt. urðalag það, sem nú er á 1. málsgr. Ég hefi áður gert grein fyrir því, hve hentugt þetta fyrirkomulag væri. Ég gerði það við 2. umr. þessa máls og sé því ekki ástæðu til að fara út í það frekar. Einnig minntist ég við 2. umr. á þá varatill., er ég hefi flutt við stjskrfrv. um. að kosið sé til Alþ. í alls 6 kjördæmum, og eru þessi kjördæmi þar talin upp. Fyrir þeirri till. var líka gerð nokkur grein, enda er það mál eldra á þingi og hv. þm. er það kunnugt, og þarf það ekki langrar útlistunar við. Flestir munu búnir að taka afstöðu til þess. En þetta hefir þótt aðgengilegri till., a. m. k. hjá sjálfstæðismönnum, heldur en að landið væri eitt kjördæmi, því að í nál. hefir verið boðið að fallast á þetta, svo framarlega sem samkomulag geti orðið um það milli flokkanna, enda kunnugt, að ýmsir í Sjálfstæðisfl. höfðu verið hlynntir þessu fyrirkomulagi, og sumir þeirra foringjar hafa um þetta rætt og ritað og talið það hentugt. Þótt ég telji það ekki nauðsynlegt og e. t. v. ekki hentugt, að ákveða kjördæmaskipunina sjálfa í stjskr., þá tel ég ekkert því til fyrirstöðu, að þessi kjördæmaskipun, sem hér er stungið upp á og bæði veitir kjósendum og flokkum jafnrétti, verði fest í stjskr. Það er ekkert, sem mér getur dottið í hug, sem á móti því geti mælt, og mér skilst ekki heldur, að neitt geti mælt á móti því frá hálfu sjálfstæðismanna, eftir þeirri afstöðu, sem þeir hafa haft í þessu máli. Í sambandi við brtt. hefi ég látið prenta álit fulltrúa Alþýðufl. í mþn. í kjördæmamálinu, þar sem þessar till. eru prentaðar og þar sem gerð er ýtarleg grein fyrir þeim. Og þótt þessu sé aðeins nýlega útbýtt meðal þm., þá sé ég enga ástæðu til að rifja það upp. Hv. þm. hafa sumpart heyrt það á umr., sem fram hafa farið, og nokkur hluti þessa rits kom áður í nál., sem Sjálfstæðisfl. gaf út í byrjun þings.

Ég get látið útrætt um þessar till. að sinni, en ég vænti þess, að þær fái fylgi. Ég get ekki búizt við, að Framsóknarfl. samþ. þær, því að mér er ekki kunnugt um, að hann hafi gengið inn á neitt samkomulag í kjördæmaskipunarmálinu. En það getur haft mikilvæga þýðingu fyrir málið, ef allmargir hv. þm. vildu ljá því atkv. sitt. Mér hefir skilizt það á hv. forsrh., að ekki væri þess að vænta, að neinar till. kæmu fram frá Framsóknarfl. Það á að þýða það, að till. sessunautar míns, hv. 2. þm. Árn., sé flutt á eigin ábyrgð þm., en ekki flokksins. Annars vil ég bíða eftir því, að hann rökstyðji þá till., því að hún er, eins og nú standa sakir, alls ekki svo fráleit, sérstaklega ef hugsanlegt væri, að flokksmenn hans vildu gera samkomulag um málið á grundvelli till. hans. Þótt Reykjavík eigi þarna að vera afskipt, þá er samt mikil bót í till., og e. t. v. mætti þoka einhverju um frá till.

Að lokum vil ég, vegna atkv gr., beina því til hæstv. forseta, að í brtt. minni á þskj. 387 á b-liðurinn undir 1. tölul. aðeins við 1. till.: Landið allt eitt kjördæmi, því að þar er ákveðin tala alþm.; en ef sú till. yrði felld, þá er þessi liður sjálffallinn eða tekinn aftur. Því að þótt varatill. yrði samþ., á þessi till. ekki við, því að eftir henni á tala alþm. að vera óákveðin, eins og nú er í stjskrfrv.

Þá er að lokum sú brtt., sem ég minntist lítillega á í upphafi, við 4. gr., um að fella úr frv. ákvæði um, að það sé skilyrði fyrir kosningarrétti, að kjósandi hafi verið búsettur seinustu 5 árin í landinu. Þetta ákvæði var sett í stjskr. þegar hæst gengu bylgjurnar í baráttunni við Dani, og átti að vera einskonar trygging fyrir því, að ekki yrði mikið um flutning manna frá Danmörku, sem gætu öðlazt hér kosningarrétt og haft einhver áhrif á úrslit mála. Sérstaklega var höfð í huga atkvgr. um sambandsmálið, sem myndi fara fram 1942. Mér hefir alltaf fundizt þetta vera ranglæti, og ég geri ekki ráð fyrir því, að hætta stafi af innflutningi manna í svo stórum stíl, að þeir geti haft áhrif á kosningar hér á landi. Aftur á móti kemur þetta ranglæti berlega fram gagnvart landsmönnum sjálfum, sem dvelja erlendis um nokkurn tíma og missa við það kosningarrétt og verða svo að bíða hér í 5 ár til þess að öðlast hann aftur. Það er fjöldi iðnaðarmanna, sem hafa siglt og dvalið erlendis til að fullkomna sig í iðn sinni og komið svo hingað aftur að því loknu. Þessir menn hafa verið sviptir kosningarrétti um næstu 5 árin, og sökum þess að þetta var stjskr.atriði, var engu hægt um að þoka. Ég tel slíkan hemil á kosningarrétti mjög ranglátan og óþarfan, a. m. k. í því augnamiði, sem upprunalega var miðað við. Ég vænti því, að d. muni fallast á þessa till. og sníði þetta ólán úr stjskr., þetta ranglæti, sem staðið hefir síðan 1920.