13.04.1932
Efri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í C-deild Alþingistíðinda. (11264)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. meiri hl. af hálfu Sjálfstfl. (Jón Þorláksson):

Hv. 2. landsk. taldi, að brtt. okkar um að binda tölu þm. við ákveðið hámark færi í bága við réttlætisákvæði 1. gr. frv., ef till. okkar í kjördæmaskipunarmálinu gengju fram í aðalatriðum. En hann tók sig þó á síðar í ræðu sinni og benti einmitt á þá úrlausn, sem við höfum tekið fram, en hún er sú, að ef svo ólíklega skyldi fara einu sinni á öld eða svo, að ekki væru næg uppbótarsæti til að færa þm.tölu flokkanna til samræmis við atkvæðatölur þeirra við næstu undangengnar kosningar vegna þessa hámarks, þá mætti ákveða svo í kosningalögum, að sá þm. af þeim flokki, sem ekki ætti að njóta uppbótarsæta, sem kosinn væri með minnstum meiri hl. í sínu kjördæmi, skyldi þoka fyrir næsta manni í því kjördæmi. En hann sagðist halda, að ekki mundi nást samkomulag um þetta, því það mundi þykja líta illa út, ef frambjóðandi, sem kosinn væri með miklum meiri hl. í sínu kjördæmi, teldist ekki kosinn. En það er engin hætta á því, að sá þm., sem kosinn er með miklum meiri hl. í sínu kjördæmi, teljist ekki kosinn, því ef enginn flokkur hefir fengið mikið af þm. fram yfir það, sem honum ber samkv. atkvæðamagni sínu, þá er ekki svo sérstaklega mikil hætta á, að 20 uppbótarsæti nægi ekki til að jafna mismuninn í 26 kjördæmum. Með því að allir frambjóðendur, sem kosningu ná, fái mikinn meiri hl., hver í sínu kjördæmi, getur þetta sem sé ekki komið fyrir. Þessi niðurstaða getur ekki fengizt nema það séu áhöld um atkvæðamagn frambjóðendanna sumstaðar, eða einn eða fleiri frambjóðendur séu kosnir með minni hl. í sínu kjördæmi, t. d. í þrískiptri kosningu. En að líkindum mundi aldrei koma til þess, að sá þm. þyrfti að þoka fyrir næsta manni, sem kosinn væri með meiri hl. greiddra atkv. í sínu kjördæmi. Ég held meira að segja, að það sé ekki ástæða til að gera ráð fyrir, að þessu ákvæði þurfi að heita, ef það aðeins er sett í kosningalöggjöfina til varnar gegn misbrúkun á hámarksákvæðinu, því það hefir ekki legið fyrir til rannsóknar nein sú kosning, þar sem þurft hefir meira en 64% uppbótarsæta móts við tölu einmenningskjördæmanna, en það svarar til 18 uppbótarsæta hér.

Þá vil ég sérstaklega undirstrika það, sem hann einnig hafði tekið eftir, að brtt. okkar kemur ekki í bága við þá kosningatilhögun, sem hann hefir stungið upp á. Það liggur jafnopið fyrir að lögleiða hana, ef á það yrði fallizt, þó brtt. okkar verði samþ.

Þá vil ég leyfa mér að leiðrétta það, sem hann sagði, og síðar tók hann það reyndar alveg rétt fram, að þetta mál, sjálf stjskrbreyt., er ekki kjördæmaskipunarmál, því það mál verður eftir sem áður í höndum hins almenna löggjafarvalds, þó þetta frv. verði samþ. — þó það kunni hinsvegar að vera rétt hjá hv. 2. landsk., að þetta muni verða kjördæmaskipunarmál í reyndinni, af því að um þetta frv. muni ekki nást samkomulag, nema samkomulag um hitt sé gengið á undan.

Ég hefi nú í þessu efni tilhneigingu til að fylgja þeirri skoðun, sem hv. 2. þm. Árn. lét í ljós áðan, að það megi bíða að taka ákvörðun um kjördæmaskipunina sjálfa, og að þá sé réttara að taka heldur tímann til næsta þings til að íhuga hana og kosningatilhögunina að öðru leyti, þó þessum atriðum sé slegið föstum nú. Hinsvegar hefði ég náttúrlega ekkert út á það að setja, ef það gæti tekizt á þessu þingi, að reynt væri að ná samkomulagi um kjördæmaskipunina á þeim grundvelli, sem lagður er í 1. gr. þessa frv. Það væri auðvitað gott, en ég tel það ekki nauðsynlegt, og allra sízt tel ég forsvaranlegt að láta samþykkt stjskr. farast fyrir nú á þessu þingi fyrir þá sök, að menn eru ekki búnir að koma sér saman um, hvernig kjördæmaskipunin og kosningatilhögunin eigi að vera.

Þá viðurkenndi hv. þm., að það væri ekki hentugt að binda kjördæmaskipunina í sjálfri stjskr. Það er einmitt vegna þessa, sem ég er óánægður með varatill. hans, að með henni vill hann setja bundna kjördæmaskipun inn í stjskr. Aftur gildir þetta ekki um aðaltill. hans, sem gerir ráð fyrir, að landið sé eitt kjördæmi, því það er ekki óeðlilegt að ákveða slíkt í stjskr., ef að því yrði horfið, enda er það í samræmi við það, sem annarsstaðar hefir verið gert, í þeim löndum, sem hafa sett tölu kjördæma í stjórnarlög sín. Ég hefði heldur ekki haft á móti varatill. hans, um 6 kjördæmi, ef mér hefði þótt líkur til, að hún mundi fremur ná samþykki þingsins en till. okkar sjálfstæðismanna, og ef ekki hefði verið lengra gengið í henni en það, að ákveða tölu kjördæmanna. En ég get ekki séð, að það sé réttmætt að ákveða í sjálfri stjskr. t. d. það, hvort Norður-Þingeyjarsýsla skuli heyra til Norðurlandskjördæmi eða Austurlandskjördæmi, ef það svo kynnu að vera uppi ákveðnar óskir um það í sýslunni, hvoru kjördæminu hún ætti að tilheyra. Ég álít því, að það eigi ekki í stjskr. að ákveða takmörk kjördæmanna. Og ég get bent á, að það eina dæmi, sem við höfum um það í Norðurálfu, að þetta sé gert, sem sé í stjórnarlögum Noregs, er fremur til aðvörunar en eftirbreytni.

Um brtt. hv. þm. að öðru leyti er það að segja, að hann sagði, að það, sem hefði gefið sér tilefni til að bera fram þessar brtt., hefði verið það, að við sjálfstæðismenn bárum fram okkar brtt. Það sýnist þó ekki hefði þurft að vera, því þetta eru þær till., sem hann lagði fram í kjördæmanefndinni. Það sýnist því ekki, að hann hefði þurft að fá neitt utanaðkomandi tilefni til að bera þær fram, því það er mjög eðlilegt, að hann vildi láta þær sjást hér á þinglegan hátt og koma fram með sínar óskir og síns flokks í þessu máli.

Ég vil annars láta ánægju mína í ljós yfir því, sem mér kom þó ekki á óvart, að hv. þm. bæði í aðal- og varatill. tekur upp réttlætiskröfuna í 1. gr. frv. óbreytta.

Ég hefi gert grein fyrir því áður, af hverju ég vil ekki hafa allt landið eitt kjördæmi, og skal því ekki gera það nú. En þó vil ég aðeins segja það, að það væri náttúrlega hægt að finna kosningatilhögun, sem væri miklu lakari en landið eitt kjördæmi. Og ef ég ætti að velja um núv. kosningatilhögun óbreytta og landið eitt kjördæmi, og ekki væri kostur á að velja um fleira, þá mundi ég heldur fyrir mitt leyti velja landið eitt kjördæmi, því þar með er þó fullnægt þeirri réttlætiskröfu, sem er óbifanlega fastur grundvöllur og höfuðatriðið í þessu máli.

Varatill. hv. þm., skiptingu landsins í 6 kjördæmi, hafa sjálfstæðismenn áður látið í ljós, að þeir gætu fallizt á, ef það væri líklegra til samkomulags, en ég mun þó ekki sjá mér fært að greiða atkv. með henni, þar sem kjördæmunum er þar ætlað að vera fastákveðnum í stjskr. Þar við bætist svo það, að það gæti verið varhugavert að samþ. hana, því hún er miklu ólíklegri til samkomulags á þessu þingi heldur en þó þær till., sem við sjálfstæðismenn berum fram.

Þá hefir hv. þm. borið fram brtt. við 4. gr., og felur hún það í sér að fella burt ákvæðið um 5 ára heimilisfestu í landinu sem skilyrði fyrir kosningarrétti. Ég álít nú, að það sé ekkert aðalatriði, að maður hafi verið búsettur í landinu síðustu árin áður kosning fer fram. Mér er ekkert annt um að halda þessu búsetuskilyrði, þó að það sé óskylt mál. En þar fyrir get ég ekki fallizt á þessa brtt. hv. þm., af því að hún fellir alveg í burt skilyrðið um það, að kjósendur þurfi að vera búsettir í landinu. Ég veit að sönnu, að sum ríki veita ríkisborgurum sínum, búsettum erlendis, kosningarrétt. Og þetta, að þeir íslenzkir ríkisborgarar, sem búsettir eru erlendis, hafi kosningarrétt, getur vel samrýmzt við það, að landið sé eitt kjördæmi. Og því, að veita íslenzkum ríkisborgurum erlendis þennan rétt, sé ég út af fyrir sig ekkert á móti. En ég sé ekki, að búsetuskilyrðið innan kjördæmis megi falla burt, svo framarlega sem maður hugsar sér einhverskonar skipting landsins í kjördæmi, því það yrði ómögulegt í framkvæmdinni. Ég veit ekki, hvort hv. þm. hefir athugað þetta, eða hvort hann hefir gert það í ógáti að fella þetta niður. Í stjskr. flestra landa er kosningarréttur ríkisborgaranna; að undanskildum náttúrlega þeim mönnum, sem erlendis hafa á hendi störf fyrir ríkið, bundinn við búsetu í landinu. Að öðru leyti mun ég ekki greina frá nú, hvað liði afstöðu minni til 5 ára búsetuskilyrðisins, ef vænta mætti, að það mál lægi fyrir til afgreiðslu.

Ég skal ekki fara mikið úr í ræðu hv. 2. þm. Árn. Hún var mikið glens og gaman að hlusta á hana og var öll þess eðlis, að hún bætti ekki upp brtt. þá, sem þessi hv. þm. flytur. Það heyrðist þó á ræðu hv. þm., að hann ætlast til, að Reykjavík nálgist það að verða sérstakt ríki. Hann talaði um, að Reykvíkingar ættu ekki samleið með öðrum landsmönnum í þessu máli, og skýrði till. sína svo, að Reykjavík ætti að vera nokkurskonar ríki í ríkinu. Ég skal ekkert fara út í það lengra, en aðeins segja það, að ef komið er í svo mikið öngþveiti með þetta mál, að samkomulagið á að stranda á því einu, að meiri hl. þingsins vill ekki unna Reykvíkingum þess að hafa jafnrétti við aðra landsmenn, þá mundi Reykvíkingum varla ógeðfellt að hugsa til þess að leysa landfestar og að hvorir sigldu sinn sjó — að Reykjavík réði sínum málum og aðrir sínum. En sú skýring, sem hv. þm. gaf á till., var nánast sú, að hann með henni hefði hugsað sér að stíga spor í áttina til þessa, svo ég, eins og hv. 3. landsk., viðhafi orð, sem ég hefi heyrt annarsstaðar.

Till. fer annars fram á það, að „á Alþingi eigi sæti allt að 45 þjóðkjörnir fulltrúar. Alþingi skal svo skipað, að utan Reykjavíkur hafi hver þingflokkur þingsæti í samræmi við atkvæðatölu þá, sem greidd er frambjóðendum flokksins samtals við almennar kosningar“. Nú er það vitanlegt; að það er hlutfallslegt jafnrétti í kjördæmunum utan Reykjavíkur, sem aðallega stendur fyrir samkomulagi. Hitt er vitað, að í Reykjavík er hlutfallskosning, og heldur áfram að vera, og hún kemur því aðeins þessu máli við að því leyti, sem það snertir bæinn sjálfan.

Hv. þm. hefir nú höggið burt af till. þann agnúa, sem valdið hefir mestum ágreiningi. Hann hefir sem sé gengið inn á kröfuna um fullnægingu réttlætisins utan Reykjavíkur með því að vilja jafna hlutfallið milli hinna pólitísku flokka.

Þegar þetta er nú fengið viðurkennt, þá sýnist fremur stutt spor orðið milli hv. þm. og okkar í þessu máli. Annars sagði hann, að það væri aftur á móti ekkert æskilegt, að Reykjavík hefði þingmannatölu í samræmi við atkvæðafjölda, og er það vitanlega einkennilegt ósamræmi.

Hv. 3. landsk. lýsti yfir vonbrigðum sínum yfir því, að mþn. í kjördæmamálinu skyldi ekki ná til samkomulags um málið. Ég skil það vel, að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum í þessu efni, því ég veit, að það eru margir, sem líta svo á, að ekki hafi verið nægilegar ástæður fyrir því, að samkomulag skyldi ekki nást, þegar hv. fulltrúi Alþýðufl. hafði teygt sig svo langt til samkomulags við okkur að fallast á till., sem í öllum aðalatriðum rúmuðu stefnu Framsóknarfl., með því tekið var tillit til bókstaflega allra þeirra óska, er þeir höfðu látið í ljós í málinu. Kjördæmin fengu að hafa sína fulltrúa eins og verið hafði, auk annara atriða, er þeir höfðu lagt áherzlu á. En það stóð á þeim sjálfum, framsóknarmönnunum, að fallast á þessar till., og ég get vel skilið það, að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum út af þeirri afstöðu þeirra, því það virðist sem sjálfgefið, að þeir hefðu átt að fallast á þessar till.

En hitt ætti engum að valda vonbrigðum, eftir það, sem á undan er gengið, þó að frv. þetta sé flutt hér nú og sótt af nokkru kappi, enda viðurkenndi hv. þm. það, að fyrirkomulagið á kjördæmaskipun og kosningatilhögun væri nú ekki orðið viðunandi.

Hv. 3. landsk. kom nokkuð inn á að ræða um hina erfiðu tíma fyrir þjóðina, sem nú væru yfirstandandi. Taldi hann þess vegna, að rétt mundi að láta þetta mál bíða að þessu sinni, en að allir flokkar þingsins ættu að skipa sér í eina sterka fylking og vinna saman að viðreisn þjóðarinnar. Til þessa er því að svara, að það var lokað fyrir möguleika um alla samninga um frestun þessara mála með þingrofinu 14. apríl í fyrra. Þeir menn, sem leyfðu sér að nota slíkt vopn til þess að loka fyrir hóflegar breytingar á stjskr., geta ekki ári síðar komið til okkar og sagt, að við megum til að fresta þessu máli fyrir þeirra orð.

Hvað hina almennu erfiðleika snertir, þá skal ég hinsvegar viðurkenna, að þeir eru ákaflega miklir og þjóðin öll er í miklum vanda stödd. En ég held, að einmitt þess vegna sé nú ekki annað ráð en að segja: Komum allir í fylkingu sem jafnréttháir borgarar til baráttu fyrir viðreisn okkar á þessum erfiðu og alvarlegu tímum.

Ég get ekki séð, að þeir, sem vilja halda rétti fyrir öðrum, geti krafið þá til ábyrgðar og þátttöku í lausn vandamálanna. Ég held einmitt, að tímarnir séu þannig, að við getum tekið undir með enska flotaforingjanum um það, að við séum allir skyldir sem einn maður, sem ein þjóð að mæta erfiðleikunum. En ef allir eiga að taka á sig jafna skyldu, þá verða allir líka að hafa jafnan rétt. Við förum ekki fram á annað en að allir fái jafnan rétt, en þá mælumst við heldur ekki undan skyldunum. Ef réttlætiskrafan er einstrengingsleg, þá er krafan um skylduna einnig einstrengingsleg, en hvorug krafan er það, heldur eru þær báðar sjálfsagðar.

Í okkar frv. er ekki nein krafa um það, að Reykjavík skuli hafa þingmannatölu í hlutfalli við atkvæðafjölda, heldur að atkvæði Reykvíkinga komi til greina þegar farið er að jafna þingmannatöluna milli hinna einstöku stjórnmálaflokka í landinu. Þá fái atkvæði Reykvíkinga að gilda jafnt og atkvæði annara borgara þjóðfélagsins. Ég skal gera grein fyrir ástæðunum fyrir því, að ég álít það svo nauðsynlegt að gera atkvæðin jafngild, hvar á landinu sem eru. Ég álít, að með því sé slegið niður þeim tilraunum til að ala á úlfúð milli Reykjavíkur og sveitanna, sem sífellt eru á ferðinni. Ég álít, að sú vitneskja, að atkvæðin í Reykjavík séu jafnþung á metunum og atkvæði annarsstaðar á landinu, kenni stjórnmálamönnunum að hætta að ala á úlfúðinni á milli þessara aðila.

Hv. 3. landsk. talaði um það, að margir þm. væru búsettir í Reykjavík og að það mætti skoða þessa menn að nokkru leyti sem fulltrúa Reykjavíkur. Það getur vel verið, að búseta hafi ef til vill eitthvað að segja í þessu efni, en þó hindrar hún það engan veginn, að þessir sömu hv. þm. kunni að ferðast um landið og flytja róg og níð um Reykjavík og Reykvíkinga. Ég vil í því sambandi minna á tvo þm., tvo hæstv. ráðh., sem geistust um landið fyrir síðustu kosningar. Hæstv. dómsmrh. lýsti Reykvíkingum á fundum, sem ég var á með honum, sem skítugum og fullum og æpandi skríl. Og þessi lýsing var flutt fyrir þeim áheyrendum, er margir eða flestir höfðu aldrei komið til Reykjavíkur og höfðu því litla eða enga ástæðu til þess að dæma um, hvort þetta var rétt eða ekki. Annar ráðh. talaði mikið um kynsjúkdóma í sambandi við rétt Reykvíkinga í kjördæmamálinu. Ég veit ekki, hvernig hann fór að því að samræma þetta, en eitthvert samband fann hann þó hér á milli.

Ef nú það skipulag kæmist á kosningarréttinn, sem við sjálfstæðismenn leggjum til, að hann verði alstaðar jafn, þá hættir slíkur rógur sem þessi alveg af sjálfu sér. Aftur á móti getur flokkurinn séð sér stóran hag í því að vinna sér með þessum vopnum þó ekki sé nema 10 atkv. í fámennu kjördæmi, þó hann fyrir það tapi 50 atkv. í Reykjavík. Ég álít, að þegar atkvæðin í Reykjavík eru orðin jafnrétthá og annarsstaðar á landinu, þá verði hægt að vinna bug á þessari stefnu. En ef það tekst ekki nú að fá réttlætið viðurkennt, þá mun það fara svo, að sambúðin verður óþolandi, og þá getur farið svo, að réttara verði fyrir þessa tvo aðila að skilja heldur en að lifa í kveljandi sambúð. En ég geri ekki ráð fyrir, að svo fari. Ég veit nú, að þegar hv. framsóknarmenn athuga betur rök þessa máls, þá sjá þeir, að ekki dugir að stefna þessu máli í slíkan voða. Um tölu þm. fyrir Reykjavík lítur ekki út fyrir, að verði neinn ágreiningur, þó að við leggjum til, að þeir verði 4, en framsóknarmenn 3. Ég vil svo þakka hv. 3. landsk. fyrir þann stuðning, er hann veitti frv. við 2. umr., og vona, að hann gangi ekki á móti því nú. Ég álít, að hvað sem þessu frv. miðar áfram, þá sé það spor í áttina til vinnings fyrir góðan og réttlátan málstað.