14.04.1932
Efri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í C-deild Alþingistíðinda. (11275)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Jakob Möller:

Ég ætla ekki að svara þessari bunu hæstv. dómsmrh. Það er nú svoleiðis með hann, að þegar hann tekur til máls, þá er beðið eftir því af öllum, að einhverjir náttúrukraftar verði til þess að stöðva hann. Svo þarf enginn að skipta sér neitt meira af því. Þar ægir öllu saman, svo sem því, að hv. 1. landsk. hafi gert 8 millj. kr. áætlun, sem haldið hafi verið fram í fyrra. Þetta vita hv. þdm., að er vitleysa, svo ástæðulaust er að fara lengra út í það.

Ég stóð nú upp af því, að ég skaut því fram í ræðu hæstv. dómsmrh., að hann botnaði auðsjáanlega hvorki upp né niður í því, sem hann var þá að tala um. Ég ætla nú að gera grein fyrir, hvers vegna ég sagði það. Hæstv. ráðh. var þá að tala um, að kominn væri upp ágreiningur í þessu máli milli sjálfstæðismanna og jafnaðarmanna og var mjög glaður yfir því. Þessa ályktun dró hann víst af því, að till. hefir komið fram frá fulltrúum sjálfstæðismanna í stjskrn. um, að hámark tölu þm. skuli vera 50. Hæstv. ráðh. virtist skilja þetta svo, að með þessu væri tala uppbótarsæta flokkanna takmörkuð. Hv. 2. landsk. hefir að vísu slegið á líka strengi, en hann veit þó vel, að þessu er ekki svo farið. Það er m. a. ljóst af því, hvernig hann talaði um till. hv. 2. þm. Árn., eftir að hafa þó talað um afslátt, er kæmi fram hjá Sjálfstæðisfl. í brtt. hv. 1. og hv. 4. landsk. Hann talaði um till. hv. 2. þm. Árn. sem líklegar til samkomulags, en þar var þó gert ráð fyrir 45 þingsætum, í stað 50 í till. hv. 1. og 4. landsk. Þar er heldur ekki slegið af neinum kröfum. Hæstv. dómsmrh. var að tala um, að ósamræmi kæmi fram í því hjá hv. 1. landsk., að í kjördæman. hefði hann haldið því fram, að ekki mætti takmarka tölu uppbótarsæta þingflokkanna, en nú legði hann til, að talan væri takmörkuð. Hæstv. ráðh. sýnir bara með þessu, að hann skilur það ekki, að með brtt. er tala uppbótarsæta flokkunum til handa heldur ekki takmörkuð. Stjórnarskráin, ef frv. verður samþ. óbreytt, segir eftir sem áður, að flokkarnir skuli fá þingsæti í réttu hlutfalli við atkvæðamagn. Ef því þau uppbótarsæti, sem afgangs verða, þegar kosning hefir farið fram, hrökkva ekki til að fullnægja því ákvæði, þá verður þetta að nást á þann hátt, að allir þeir frambjóðendur, sem fengið hafa meiri hl. í kjördæmum, komast ekki að sem þingmenn; þeir verða einhverjir að víkja, þar til réttu hlutfalli milli flokkanna er náð. Þetta er skilningur hv. flm., og ég veit, að þetta skilja allir. Hæstv. dómsmrh. er bara undantekning. Hann skilur þetta auðsjáanlega ekki, en það verður að afsaka það.

Ég vil þá beina orðum mínum til hv. 3. landsk., sem talaði með alvöruþunga og ábyrgðartilfinningu um þetta mál og vitnaði að síðustu í orð Þorgeirs Ljósvetningagoða, þau er hann viðhafði árið 1000, um að allir landsmenn ættu að lúta sömu lögum, og að slíta sundur lögin væri að slíta sundur friðinn. Ég get verið á sama máli um þetta. En ég bið Framsóknarfl. að athuga, hverjir slíta sundur friðinn. Þetta mál er svo til komið, að á vetrarþinginu 1931 kom fram frv. til stjórnskipunarlaga frá stj., um það, að leggja niður landskjörið. Nú er á það að líta, að landskjörið var þó hið eina réttláta fyrirkomulag innan kosningalaganna, þar sem það tryggði þó flokkunum hlutfallslegan rétt svo langt sem það náði. Að nema þetta ákvæði burt var því að slíta sundur friðinn. Með þessu átti að tryggja sveitunum annan rétt en hinum fjölmennustu kaupstöðum. Ábyrgðin hlýtur því að falla á þeirra eigið bak, ef friðnum verður slitið.

Hv. þm. talaði um, að miðla mætti svo málum, að öllum líkaði sæmilega vel. Ég vil spyrja hv. framsóknarþm., hvort þeim líkar það vel, að allir landsmenn hafi sama rétt. Annað er ekki farið fram á í þessu máli. Hv. þm. sagði, að það væri viðurkennt í útlöndum, að stórbæir eigi ekki að hafa sama rétt og aðrir landshlutar um fulltrúaval til þings. Það er nú hálfspaugilegt að heyra hv. þm. bera þetta fram máli sínu til stuðnings. Stórborgir erlendis hafa átt í alveg sama stríði og nú er háð hér. Þær hafa byggzt mjög ört á síðari tímum og hafa hvarvetna orðið að sækja rétt sinn til eldra skipulags. Þar sem enn er ekki komið á fullt jafnvægi, þar hefir tekizt að halda í þennan rétt fyrir borgunum. En það sannar ekki, að í því sé nein sanngirni.

Það sannar bara, að þar hefir verið beitt rangsleitni gagnvart íbúum borganna, alveg eins og Framsóknarflokkurinn vill gera hér.

Ég get tekið undir ummæli hv. 3. landsk., þau, að mönnum beri að gera sér ljóst, hver ábyrgð hvílir á öllum. En þá verður líka að gera sér það ljóst, að sú skylda hvílir ekki eingöngu á þeim, sem órétti eru beittir. Þeir, sem óréttinum beita, hafa vitanlega miklu ríkari skyldu til að leysa málið. Og framsóknarmenn verða að gera sér það ljóst, að það eru þeir, sem óréttinum beita. Þeir þurfa ekki að láta sér detta það í hug, eins og hæstv. dómsmrh. var að útmála áðan, þegar hann las hér upp Tímagrein, sem hann hefir verið nýbúinn að skrifa, að við vitum ekki, hvaða áhrif það mundi hafa bæði út á við og inn á við, ef friðnum verður slitið. Það mun eflaust standa okkur fyrir sjónum miklu ljósara en þeim, hverjar afleiðingar slík friðslit myndu hafa. En það mega framsóknarmenn þó vita, að hér mun verða fast á haldið réttlætismálunum af fulltrúum þeirra, er þeim halda fram, og ekki horft í, þótt eitthvað kosti að fá þau leidd til sigurs.

Hæstv. dómsmrh. talaði um, að það kostaði það, að við mundum ekki fá lán erlendis, ef friðnum verður slitið. Ég tel nú, að ekki sé miklu til kostað, þótt við fengjum ekki lán handa þeirri stjórn, er nú situr. Og ég hygg, að flestum landsmönnum þyki nú nóg af því komið að trúa henni fyrir fé og vilji tæplega, að ný lán séu tekin, ef hún á að ráðstafa þeim. Þótt því afleiðingin af því, að réttlætismáli þessu er fast fram haldið, yrði nokkur hamla á fjársóun stj., þá gætu það ekki talizt illar afleiðingar. Ég hygg, að allir landsmenn sjái nú, að of miklu fé hefir verið ausið í stj., og harmi það því ekki, þótt hún hafi úr minna að moða svona fyrst í stað.

Að síðustu skal ég segja það, að þó framsóknarmenn sumir kunni að halda, að brtt. hv. l. og 4. landsk. beri vott um það, að sjálfstæðismenn vilji slá aftur af kröfum sínum, þá er þó ekki um neinn afslátt á þeim að ræða. Framsóknarmenn mega vita það, að þessu máli verður haldið til streitu, hvað sem það kostar.