08.03.1932
Efri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1617 í C-deild Alþingistíðinda. (11315)

76. mál, fátækralög

Flm. (Magnús Torfason):

Mér þykir vænt um að heyra ummæli tveggja síðustu ræðumanna. Sanna þau að öllu mitt mál um það, að full þörf sé á þessu frv. Er það víst, að frv. gengur í þá átt, sem þeir vilja vera láta, og miðar drjúgum að því að undirbyggja löggjöf þá, er þeir fara fram á og koma mun á sínum tíma. Játa ég, að ég er því ekki mótfallinn út af fyrir sig, að landið verði eitt framfærsluumdæmi. Ekki er ég heldur mótfallinn því, að dvalarsveit beri þunga af opinberum styrkjum til þeirra, er þurfa, en það þarfnast meiri undirbúnings. Var ég að vísu þeirri hugsun hlynntur, sem kom fram í frv. jafnaðarmanna, en held þó ekki, að hún geti náð fram að ganga. Er það margt, sem athuga þarf áður, og verður að sjá fyrir ýmsum framkvæmdum samfara því. Landið á t. d. ekkert fátækraskýli. Get ég ekki hugsað mér, að slík lög kæmust á fyrr en því væri komið upp. Held ég og, að ríkissjóði yrði ofraun að standa straum af þvílíkum kostnaði ófyrirséð. Hinsvegar er það augljóst, að það liggur í loftinu og er samkv. þeim mannúðarhugsunum, er nú ráða, að fátæklingum líði sæmilega. Vil ég henda hv. ræðumönnum á það, sérstaklega þó hv. 2. landsk., að ráð væri að hugsa fyrir uppkomu fátækrahælis á heitum stað, þegar þekkingu manna í meðferð á heita vatninu væri nógu langt komið.

Báðir hv. ræðumenn gerðu mikið úr því, að ókleift reyndist oft og tíðum að ná inn meðlögum. Eru þetta beztu meðmælin fyrir frv. Getur slíkt ástand vitanlega ekki haldizt áfram. Vil ég þó játa með þeim, að stundum myndi geta orðið nógu erfitt að ná inn meðlögum, þó að frv. yrði að lögum. Veit ég þó ekki betur en að ríkissjóður hafi einatt hjálpað hreppum, er í vandræðum voru staddir, og veitt þeim hallærislán.

Hv. 1. þm. Reykv. fann það að frv., að óendurkræfur sveitarstyrkur ætti ekki að slíta sveitfesti. Rök hans eru ekki mikil og virðast benda á, að hann sé ekki kunnugur málunum. — Það er vitanlegt, að duglegir oddvitar hafa jafnan gert allt, sem hægt var, til þess að velta byrðum af sínu sveitarfélagi. Verður þetta ekki lagað meðan sérhver sveit er framfærsluhreppur. Veit ég líka, að þetta jafnar sig nokkurn veginn. Þau sveitarfélög, þar sem fólki fjölgar, eru engu betri í þessu efni en hin. Brennur það mjög við, að sveitir halda mönnum uppi í öðrum hreppum, meðan þeir eru að vinna sér sveit þar. Veit ég t. d., að afarþungum ómaga, er kostar hrepp sinn árlega 3000–4000 kr., hefir verið komið til dvalar í öðrum hreppi. Ef spurt er, hvort hann þiggi styrk af sveit sinni, er þar til svarað nei, en víst er þó það, að af einhverju lifir hann, þótt ekkert vinni hann. Á þvílíku verður engin bót ráðin, meðan hver hreppur er sérstakt framfærslufélag.

Undanfarið hafa gengið yfir góðæri mikil, en á slíkum tímum þurfa fáir sveitarstyrki. Þó kemur okkur saman um, að nú þegar geti ýms sveitarfélög ekki risið undir þeim álögum, er þau hafa af þessum völdum, og versnar þetta ár frá ári nú í kreppunni. Þetta frv. setur undir þennan leka. Hefi ég ekki fundið neitt það í ræðum hv. þm., er sanni það, að frv. muni skaða á nokkurn hátt, en hinsvegar er það víst, að það mun verða til mikilla bóta.