08.03.1932
Efri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í C-deild Alþingistíðinda. (11321)

76. mál, fátækralög

Flm. (Magnús Torfason):

Ég þarf ekki að segja margt, enda skal ég játa það, að ef hv. 6. landsk. hefði í fyrri ræðu sinni talað á þann veg, sem hún gerði núna, þá hefði ég sjálfsagt látið orð falla nokkuð öðruvísi, en allt um það tel ég mig ekki hafa hagað orðum mínum öðruvísi en sæmilegt er gagnvart hv. 6. landsk., bæði sem þm. og heiðarlegri og vel metinni frú.

Hv. þm. sagði, að þetta frv. myndi auka fólksflutninga til Rvíkur. Eftir mínum kunnugleik nær þetta engri átt. Það eru atvinnumöguleikarnir, sem ráða því, hvernig fólkið flytur til í landinu. Sveitfestistíminn hefir engin áhrif á það.

Hv. þm. hélt því fram áðan, að hér væri um hreppapólitík að ræða. Ég játa það, en það er réttlát hreppapólitík, að rétta hluta þeirra landshluta, sem til þessa hafa verið beittir órétti í þessum sökum, og ég lít svo á, að enginn þm. þurfi að bera kinnroða vegna réttlætis- mála, sem hann beitir sér fyrir.

Já, við erum nú bæði spámannlega vaxin, hv. 6. landsk. og ég. Hv. þm. var að minna mig á gamlan spádóm, en ég skoða það miklu fremur sem herorð en spádóm, en þó skal ég játa það, að ég hélt þá, að kosningarnar myndu ekki fara á þann veg, sem raun varð á, því að ég hafði gert ráð fyrir, að jafnaðarmenn myndu draga meira og ekki búizt við, að frúafl. mundi verða svo fengsæll. Ég get því játað, að spádómur minn hefir ekki staðizt að þessu leyti, en allt um það er ég fús til að viðurkenna, að mér er sönn ánægja að því að geta talað við hv. 6. landsk. sem þm. innan vébanda þessarar hv. deildar.