06.04.1932
Efri deild: 44. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í C-deild Alþingistíðinda. (11335)

95. mál, læknishérað í Ólafsfirði

Jón Jónsson:

Ég hefi fylgt hv. meðnm. mínum í allshn. og lagt til, að frv. yrði samþ. Mér dylst það ekki, að þessi hreppur á afskaplega erfiða aðstöðu, þar sem hann er innibyrgður og afskorinn frá öðrum sveitum og getur því illa sótt annarsstaðar til. Það er þessi nauðsyn hans, sem ég vil undirstrika við samþykkt þessa frv. Hinsvegar hefi ég vonað, að þegar heildarlögin um læknaskipunina verða afgreidd frá þinginu, þá mundi mega koma því svo fyrir, að læknum þurfi ekki að fjölga, heldur sé nægilegt aðeins að taka meira tillit til aðstöðu Ólafsfjarðar en nú er gert. Og í því trausti, að hv. Nd. takist það og gæti hinsvegar sparnaðar þess, er hv. þm. Snæf. leggur hér áherzlu á, þá fylgi ég frv. til Nd.