07.04.1932
Efri deild: 45. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í C-deild Alþingistíðinda. (11353)
148. mál, bann hjá opinberum starfsmönnum að taka umboðslaun
11353Jón Baldvinsson:
Ég hefi ekki ástæðu til annars en að vera ánægður með undirtektir hv. allshn. við þetta frv. mitt, en get þó ekki fallizt á þá breyt., sem n. vill á því gera. Ég get ekki gengið inn á þá skilgreiningu n., að kaupfélögin séu einkafyrirtæki, og í almenningsálitinu eru þau það a. m. k. ekki, enda skera þau sig úr að því leyti, að hlutafélögin eru lokuð félög, en kaupfélögin hinsvegar opin öllum almenningi. Þá er og á það að líta, að sett hefir verið sérstök löggjöf að því er snertir skattgreiðslur kaupfélaganna, og var þetta gert vegna þess, hve mjög starfsemi þeirra nálgast opinbera starfsemi. Þessi eðlismunur á kaupfélögunum annarsvegar og hlutafélögunum hinsvegar olli því, að ég kaus að láta ákvæði frv. ná einnig til kaupfélaganna. Annars skal ég taka það fram til hugarhægðar fyrir hv. 3. landsk., að ég er ekki með þessu að beina neinu misjöfnu til kaupfélaganna í þessu efni. Ég hefi ekkert slíkt tilfelli í huga, og er enda ekki kunnugt um neitt dæmi þess, að starfsmenn kaupfélaganna hafi tekið slík umboðslaun, og hygg, að það hafi aldrei átt sér stað. En eins og ég áður sagði, lít ég svo á, að kaupfélögin séu opinber fyrirtæki, svipuð og ríkisfyrirtæki, og því þykir mér rétt vera að láta þetta ákvæði frv. einnig ná til þeirra.
Ég er ekki viss um, að það hafi verið rétt af hv. frsm. að vera að láta það uppi, að ef forstjórar opinberra stofnana hefðu einhvern prívatrekstur með höndum, kæmu þeir ekki undir ákvæði laganna að þessu leyti. Sá rekstur má þó a. m. k. ekki vera í sambandi við fyrirtæki, er þeir veita forstöðu, því þá yrði oft erfitt að gera upp á milli í þessum efnum.
Ég vil svo að lokum endurtaka þakkir mínar til n. fyrir afgreiðslu málsins, en eins og ég hefi tekið fram, get ég ekki fallizt á brtt. og mun því greiða atkv. gegn henni.