15.02.1932
Sameinað þing: 1. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (11411)

Konungsboðskapur

Þessir þingmenn voru til þings komnir:

A. Landskjörnir þingmenn:

1. Jón Þorláksson, 1. landsk. þm.

2. Jón Baldvinsson, 2. landsk. þm.

3. Jón Jónsson, 3. landsk. þm.

4. Pétur Magnússon, 4. landsk. þm.

5 Jónas Jónsson, 5. landsk. þm.

6. Guðrún Lárusdóttir, 6. landsk. þm.

B. Kjördæmakjörnir þingmenn:

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

2. Bergur Jónsson, þm. Barð.

3. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

4. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

5. Einar Arnórsson, 2. þm. Reykv.

6. Guðmundur Ólafsson, þm. A.-Húnv.

7. Halldór Stefánsson, 1. þm. N.-M.

8. Hannes Jónsson, þm. V.-Húnv.

9. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

10. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv.

11. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-11Z.

12. Jakob Möller, 1. þm. Reykv.

13. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

14. Jón Ólafsson, 1. þm. Rang.

15. Jónas Þorbergsson, þm. Dal.

16. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

17. Lárus Helgason, þm. V.-Sk.

18. Magnús Guðmundsson, 2. þm. Skagf.

19. Magnús Jónsson, 4. þm. Reykv.

20. Magnús Torfason, 2. þm. Árn.

21. Ólafur Thors, þm. G.-K.

22. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M.

23. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

24. Sveinbjörn Högnason, 2. þm. Rang.

25. Sveinn Ólafsson, 1. þm. S.-M.

26. Tryggvi Þórhallsson, þm. Str.

27. Vilmundur Jónsson, þm. Ísaf.

28. Þorleifur Jónsson, þm. A.-Sk.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi.

En ókomnir voru til þings:

1. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

2. Björn Kristjánsson, þm. N.-Þ.

3. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

4. Guðbrandur Ísberg, þm. Ak.

5. Halldór Steinsson, þm. Snæf.

6. Ingólfur Bjarnarson, þm. S.-Þ.

7. Jón Auðunn Jónsson, þm. N.-Ísf.

8. Steingrímur Steinþórsson, 1. þm. Skagf.

Konungsboðskapur.

Þá er þingmenn höfðu skilað sér til sætis, stóð upp forsætisráðherra, Tryggvi Þórhallsson, og las upp opið bréf, er stefnir Alþingi saman til reglulegs fundar mánudaginn 15. febrúar 1932, dags. 11. jan. (Sjá Stjtíð. 1932, A. bls. 1).

Því næst las forsætisráðherra upp konungsumboð sér til handa til þess að setja Alþingi, dags. s. d. (Sjá Stjtið. 1932, á bls. 2). Samkvæmt því umboði lýsti forsætisráðherra yfir því, að Alþingi væri sett.

Síðan mælti forsætisráðherra: „Minnumst ættjarðarinnar og konungsins!“

og tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi elzta þingmanninn, Svein Ólafsson, 1. þm. S.-M., til að stjóra fundi, þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings.

Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.