17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2380 í B-deild Alþingistíðinda. (11429)
Afgreiðsla þingmála
Héðinn Valdimarsson:
Ég hefði getað tekið undir það, sem hv. þm. Dal. kom með, ef hann hefði komið með það í gær, þegar ég kom með mína fyrirspurn. En þá virtist forseti vera á þeirri skoðun, að það væri ótilhlýðilegt. En nú, þegar hv. þm. Dal. kemur með sína fyrirspurn, þá lofar hann að beita refsiákvæðunum. Forseti segir, að íhaldsmenn hafi komið með ástæðu fyrir því að greiða ekki atkv. En það hefir ekki einn einasti maður gert, t. d. kom hv. 2. þm. Skagf. með þá ástæðu í gær í fimmtardómsmálinu, að hann kærði sig ekki um að greiða atkv. Þá ástæðu tók forseti gilda, en þar sem hann gerði það, þá getur hann ekki heldur neitað að taka gildar sömu ástæður hjá okkur jafnaðarmönnum.