31.03.1932
Neðri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)

25. mál, opinber greinargerð starfsmanna ríkisins

Jónas Þorbergsson:

Ég hefi borið fram brtt. við þetta frv. samkv. ósk útvarpsráðsins. Í frv. er gert ráð fyrir, að lengd erindanna verði ákveðin 20 mínútur, og er það miðað við ákvæði, sem gilti á fyrsta starfsári útvarpsins. En þessi tími, 20 mínútur, reyndist yfirleitt of stuttur, og var því lengdur upp í 25 mínútur. Útvarpsráðið hefir því óskað, að í frv. væru ekki tilteknar 20 mínútur, heldur skuli lengd erindanna miðast við venjuleg útvarpserindi. Ég vona, að óþarfi sé að tala lengra mál fyrir þessari litlu brtt., og læt þetta því nægja.