23.05.1932
Neðri deild: 81. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2395 í B-deild Alþingistíðinda. (11460)

Afgreiðsla þingmála

Jónas Þorbergsson:

Hv. form. fjhn. lét þess getið, að það mál, sem ég spurðist fyrir um, væri lítið betur komið þó að n. afgr. það frá sinni hendi, því að n. hefði afgr. mörg frv., sem d. hefði ekki afgr. enn. Þetta er rétt, en það er engin afsökun fyrir n. Henni ber skylda til að afgr. þau mál, sem henni berast, eftir því sem hún getur, svo að þau geti síðan komið til umr. og fengið þá afgreiðslu, sem meiri hl. þd. álítur rétta.

Hv. form. fjhn. upplýsti það, að n. hefði fengið 30 mál til meðferðar, og þar af hefði hún afgr. 25, svo að hún á þá aðeins 5 mál óafgr. Þetta virðist benda til þess, að þetta mál, sem er vitanlega eitt af þessum 5, eigi ekki upp á pallborðið hjá n. (HStef: Það held ég geti hugsazt!), þar sem hún hefir ekki hirt um, að afgr. málið, og þó lögðum við flm. mikla vinnu í að undirbúa það svo, að það yrði sem aðgengilegast. Hv. form. n. viðurkenndi það með þeim orðum, sem hann skaut inn i, að það væri af óvild til málsins, að n. hefði ekki afgr. það. Ég geri því ráð fyrir, ef okkur flm. endist aldur til að bera málið fram á næsta þingi, að við myndum kjósa, að málinu yrði vísað til annarar n. en hv. fjhn.