01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2399 í B-deild Alþingistíðinda. (11467)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

11467Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég skal svara fyrirspurn hv. 3. þm. Reykv., en vil þá jafnframt taka það fram, að ég svara eingöngu vegna míns ráðuneytis. Þegar ég hafði lagt fram fjárlagafrv., fékk ég að heyra það hjá sumum þm., að það væri borið fram sem kreppuráðstöfun jafnframt, en auk þess hefi ég borið fram 3 tekjuaukafrv. og mun síðar bera fram 2 önnur, sem ég mun leggja áherzlu á, að nái fram að ganga. Hafði ég ætlað mér að leggja þessi frv. fyrr fram, en svo hefir þó ekki getað orðið, og veldur bæði um lasleiki minn undanfarið, og auk þess hafa annir sótt að mér vegna málefna Útvegsbankans, og eru þm. þau kunn. Um þessi frv., sem ég nefndi, hafði ég hugsað mér að eiga tal við fjhn. d., og býst ég við, að það verði þegar í dag. Hefir form. fjhn. tjáð mér, að hann hafi kvatt n. á fund að þessum þingfundi loknum. Ég hefi þá svarað fyrirspurn hv. 3. þm. Reykv. að því, sem til míns ráðuneytis tekur, en um annað vísa ég til fors.- og atvmrh., sem mun sjálfur segja til þess, sem hann hyggst fyrir í þessum efnum.