29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2407 í B-deild Alþingistíðinda. (11476)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jóhann Jósefsson:

Eins og kunnugt er, var rannsóknarstofu háskólans lokað hann 16. marz, og það er ekki vitanlegt, að hún hafi verið opnuð aftur. Út af þessu hefi ég orðið var við óró og ugg í mönnum, þ. á. m. læknum. nú er ekki hægt að fá sýklarannsóknir framkvæmdar hér á landi. Mér er sérstaklega kunnugt um einn lækni, sem nú hefir neyðzt til að senda utan blóðprufur sjúklinga sinna til að láta rannsaka þær þar. Það leiðir af sjálfu sér, að hér er um óþægindi og hættu að ræða fyrir sjúklingana, og, þegar sjúkdómur er smitandi, líka fyrir aðra. Í grein eftir sérfræðing í kynsjúkdómum hefi ég séð þess getið. Að nú væri hættulegur kynsjúkdómur farinn að útbreiðast hér ískyggilega mikið á hinum síðustu tímum. Þá er það vitanlegt, að nú fyrir fáum dögum hefir hér orðið vart smitandi heilabólgu.

Ég vil nú beina þeirri fyrirspurn til hæstv. stj., hvort hún sjái sér ekki fært að sjá til þess, að þessi nauðsynlega stofnun taki til starfa aftur. Það mun stafa af lítilfjörlegu fjárhagsatriði, að heilbrigðisstj. og forstöðumaður stofunnar koma sér ekki saman. En það má ekki svo til ganga, að læknar hafi ekki aðgang að rannsóknarstofu. Það er komið í óefni, ef svo er stýrt, að leita verður til útlanda til sýklarannsókna. Ég vil ekki orðlengja þetta, en fyrirspurn mín er sú hvort hæstv. stj. sjái sér ekki fært að leysa málið, svo að stofan verði opnuð strax aftur. Það er áreiðanlega mjög mikið nauðsynjamál.