04.03.1932
Neðri deild: 20. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2410 í B-deild Alþingistíðinda. (11483)

Minning Magnúsar Blöndahls

forseti (JörB):

Áður en tekið verður til fundarstarfa að þessu sinni, vil ég minnast nokkrum orðum látins fyrrv. þingmanns, Magnúsar Blöndahls kaupmanns og útgerðarmanns, sem átti um eitt skeið sæti í þessari hv. deild. Hann andaðist hér í bænum í þær, sjötugur að aldri, fæddur 10. sept. 1861 að Tjörn á Vatnsnesi.

Hann nam ungur trésmiði og fullnumaði sig í þeirri iðn í Kaupmannahöfn á árunum 1880–1882. Þegar heim var komið, stundaði hann í fyrstu smíðar um tveggja ára skeið, en eftir það fékkst hann jafnframt smiðunum við verzlun og útgerð í Hafnarfirði, 1884–1900. Þá fluttist hann til Reykjavíkur, stundaði þar trésmíði framan af og gerðist meðstofnandi trésmiðjunnar Völundar og var framkvæmdarstjóri hennar frá 1903–1911. Síðan rak hann hér verzlun, útgerð og verksmiðjuiðnað til dauðadags. Var hann aðalstofnandi fiskiveiðahlutafélagsins Sleipnis og formaður í stjórn þess frá upphafi.

Hann var kosinn á þing af Reykvíkingum árið 1908 og sat á þingunum 1909 og 1911. Kosinn var hann á þingi 1911 í milliþinganefnd til þess að íhuga fjármal landsins, bankamál o. fl. Hann átti sæti í yfirfasteignamatsnefnd Reykjavíkur, og ýmsum fleiri trúnaðarstörfum gegndi hann í almenningsþarfir, meðal annars sat hann um skeið í bæjarstjórn Reykjavíkur.

Magnús Blöndahl var atorkusamur dugnaðarmaður og jafnan talinn með forvígismönnum í þeim atvinnugreinum, er hann lagði stund á. — Ég vil biðja hv. dm, að minnast þessa látna fyrrv. þingmanns með því að rísa úr sætum sínum. [Allir deildarmenn stóðu upp].

IV. Áskoranir í kjördæmamálinu.

Á 71. fundi í Ed., 10. maí, þá er lesin hafði verið úr forsetastóli tilkynning um, að lögð væri fram í lestrarsal áskorun til Alþingis í kjördæmamálinu frá 1016 alþingiskjósendum í Gullbringu- og Kjósarsýslu (Dagb. Nd. 344), mælti