11.05.1932
Efri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2411 í B-deild Alþingistíðinda. (11485)

Áskoranir í kjördæmamálinu

forseti (GÓ):

Þess skal getið út af aths. minni á fundinum í gær við upplestur á skrá um erindi til Alþingis, lögð fram í lestrarsal, að samkv. upplýsingum frá skrifstofunni er svo áastatt um allar þær áskoranir einstakra kjósenda, er sendur hafa verið Alþingi í kjördæmamálinu, nema fimm, að fyrir liggja ýmist undirskriftaskjölin sjálf (frumrit) eða símskeyti staðfest af sýslumanni viðkomandi sýslu (frá Húsavík). Framannefndar fimm áskoranir, sem ekki er svo ástatt um, eru þessar:

1. Áskoranir úr Húnavatnssýslu:

Í því efni liggur fyrir bréf til Magnúsar Guðmundssonar alþm. frá Jóni Pálmasyni á Akri og Þorsteini Bjarnasyni á Blönduósi, dags. 25. apríl, um að 408 alþingiskjósendur hafi ritað undir áskorunina.

2. Áskoranir 122 kjósenda í Snæfellsnessýslu:

Þaðan liggur fyrir símskeyti frá Eleníus Jónssyni, um að sú tala kjósenda undirriti slíka áskorun, en stöðvarstjóri staðfestir undirskrift.

3. Áskorun 65 kjósenda á Bíldudal: Þaðan hefir borizt símskeyti frá Jóni Maron til Jóns Þorlákssonar alþm., með tilkynningu um undirskriftir.

4. Áskoranir úr Skagafjarðarkjördæmi: Símskeyti. frá formanni Sjálfstæðisfélags Skagfirðinga til Magnúsar Guðmundssonar alþm., um að félagið hafi tekið við slíkum áskorunum.

5. Áskoranir frá Siglufirði:

Í því efni liggur fyrir eftirrit af undirskriftum, lagt fram af Magnúsi Guðmundssyni alþm. Mun hann eins fljótt og við verður komið leggja fram staðfestingu.

11486

V. Stjórnarskipti.

Á 85. fundi í Ed., 27. maí, og á 85. fundi í Nd., s. d., áður en gengið væri til dagskrár, lásu forsetar eftirfarandi tilkynningu:

„Þar sem ég get ekki sjálfur sótt þingfundi þessa dagana, vildi ég biðja hæstvirta forseta að lesa af minni hálfu í byrjun þingfunda í dag eftirfarandi