04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2423 í B-deild Alþingistíðinda. (11493)

Stjórnarskipti

Jón Baldvinsson:

Hæstv. forsrh. sagði það ákveðið, að hann vildi ekki verða við þeim tilmælum mínum að leita trausts þingsins. Ég álít því, að rétt sé að nota það tilboð, sem hæstv. ráðh. hefir gert mér, að láta þingið bíða eftir því, að prófað verði, hvort stj. hefir nægilegt traust eða ekki. Það stendur svo á, að við Alþýðuflokksmenn höfum undirbúið þetta dálítið. Við höfum látið prenta þskj., sem er hægt að útbýta nú þegar, en við ætluðun ekki að koma fram með, ef stj. hefði orðið við þeim tilmælum okkar að leita trausts þingsins, því að ég álít eðlilegra, að ný stj. leiti á þann hátt trausts þingsins heldur en með því að felld verði vantrauststillaga, þó að það gildi vitanlega það sama, að fella vantraust og samþ. traust.

Þessi till. er aðeins borin fram til að prófa atkv. þingmanna, prófa, hvert fylgi stj. hefir. Ég óska eftir, að þessi till. verði tekin til umr. í Sþ. nú þegar, til að tefja ekki tímann. Ég býst ekki við, að fylgismenn stj. úr báðum flokkum þurfi langan umhugsunartíma til að ráða það við sig, hvernig þeir greiða atkv. um þessa till. Ég vil því mælast til þess, að hæstv. forsrh. og forseti leyfi þessari þáltill. að komast að nú, og af minni hálfu munu ekki verða frekari umr. um hana en nú er orðið. Þetta ætti því ekki að þurfa að taka neinn tíma.

Hæstv. ráðh. þykist geta eygt einhver málalok í kjördæmamálinu. Ég get ekki sagt, að það sé ákveðið svar við spurningu minni, hvernig það mál eigi að leysa, og í því felst ekki mikil trygging fyrir því, að málið verði leyst. En það var það, sem ég vildi fá svar við, til þess að hægt væri að segja þeim mörgu kjósendum, sem krefjast breyt. á kjördæmaskipuninni, á hvern hátt það verði leyst og hvaða trygging sé fyrir því, að það verði leyst. Mér skilst líka á hæstv. ráðh., að hann hafi enga tryggingu fyrir, að hann geti leyst málið. Hann segir aðeins, að hann eygi einhverja möguleika, en hann veit þó ekki, hvort það er nokkuð meira en hugarburður einn, hvort nokkurn tíma getur rætzt úr eða ekki. Ég er því litlu nær en eftir fyrstu ræðu hæstv. ráðh. Það er því svo ástatt nú, að engin trygging er fyrir því,, að kjördæmamálið verði leyst á næsta þingi, — því er miður.

Hæstv. ráðh. svaraði spurningu minni um gengismálið skýrt og ákveðið, og get ég eftir atvikum verið ánægður með svar hans. Meira gat hann vitanlega ekki sagt heldur en það, hver stefna gengisnefndar væri, sem sé sú, að halda sér við sterlingspundsgengið. Læt ég mér því nægja það svar hans.

Þá er búið að útbýta vantrauststill. Mér finnst vel hægt að ganga til atkv. um hana nú, þó að hún hafi ekki verið tekin á dagskrá. Það tekur langminnstan tíma fyrir þingið, því að ég geri ekki kröfu til að tala um þetta mál frekar en orðið er, nema sérstakt tilefni gefist til.