04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (11496)

Stjórnarskipti

Héðinn Valdimarsson:

Ég er mjög ánægður með þá yfirlýsingu hæstv. dómsmrh., að hann muni ekki falla frá þessari sakamálsrannsókn á sjálfan hann. En þá vil ég spyrja hann um það, hvort hann ætli ekki að láta kærurnar á bankastjóra Íslandsbanka og þá aðra halda áfram líka.