04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2427 í B-deild Alþingistíðinda. (11498)

Stjórnarskipti

Jónas Jónsson:

Af því að hv. 3. þm. Reykv. hefir beint til mín fyrirspurn, verð ég að segja hér nokkur orð. Það mál, sem hann sérstaklega spurði um, var gjaldþrotamál kaupmanns, sem heitir Rehrens. Það stóð svo á, að rétta firma hafði lengi verið nokkuð veikt, hafði leitað nauðasamninga og búið við margskonar aðrar þrengingar. Mér er litið kunnugt um allt þess stríð, þekki það ekki neitt nema af þeim skjölum, sem komið hafa til dómsmálaskrifstofunnar í stjórnarráðinu. Eftir að þetta firma var orðið gjaldþrota, kom í ljós, að það hafði eiginlega aldrei átt fyrir skuldum og margir orðið fyrir stórtapi á því, vegna þess að einn lánardrottinn náði öllu eða mestöllu sínu úr þrotabúinu, án þess að hinir lánardrottnarnir vissu af. En við allt þetta brask var hv. 2. þm. Skagf. lögráðunautur hins gjaldþrota manns. Einn þáttur þessa máls er það, að málafærsluskrifstofa ein hér í bæ krafðist frekari rannsóknar á því, hver hefði verið afstaða tiltekins endurskoðanda og málafærslumanns, sem höfðu með þetta að gera. Hefir þetta mál allt gengið sinn vanagang í stjórnarráðinu, nákvæmlega eins og önnur samkynja mál. Ef þessi málafærslumaður hefði ekki verið þm., þá hefði enginn haft neitt við þetta að athuga. Allur þessi blástur út af málinu er af því,, að einn þessara manna, sem þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum, er þm. Datt mér auðvitað ekki annað í hug en að láta það ganga sinn gang fyrir því,, en hinsvegar er það ekki mitt að segja, hvernig það fer, ef það gengur til dóms, sem ég býst við, að hæstv. dómsmrh. láti verða. Eins og málið lá fyrir, var ekki annað hægt en að láta það ganga til lögreglustjóra, án þess að stj. gerði sig seka í vítaverðu athæfi. Vona ég, að hæstv. dómsmrh. sé mér sammála um það, að málið eigi að ganga sinn gang. Kemur þá í ljós, hvort þessi erlendu firmu hafa haft á réttu að standa.

Ég nota tækifærið hér til þess að láta þess getið, að ég lýsti yfir pólitískri andstöðu við eftirmann minn, þegar stjórnarmyndunin var til umr. í Framsóknarflokknum.