04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (11514)
Stjórnarskipti
Ólafur Thors:
Hv. þm. Dal. færði þá skýringu fram á málshöfðun sinni gegn Morgunblaðinu, að hann hefði gert það sem embættismaður, og vildi hv. þm. með þessu leitast við að hrekja, það, sem ég hafði áður sagt, og, var það, að fyrrv. dómsmrh. hefði farið með visvítandi ósannindi við konung, er hann símaði konungi, að svo væri háttað hér á landi, að aðeins einn flokkurinn í landinu höfðaði mál út af meiðyrðum í blaðadeilum. Þessi tilraun hv. þm. Dal. til að bregða skildi fyrir flokksbróður sinn sýnist þó vera vitagagnslaus, því að ég veit ekki betur en að einmitt sá maður, sem hv. 5. landsk. réðst einna svæsnast á, væri embættismaður, og væri einmitt embættismaður, er þessar árásir á hann stóðu yfir. Þessi maður er Helgi Tómasson læknir, og var hann borinn öllum illum sökum, allt að því að hann væri manndrápari, ef það þá ekki var skýrum orðum sagt. Helgi Tómasson fór í meiðyrðamál við fyrrv. dómsmrh. og annan til af níðriturum Tímans, og ritstjóri Tímans, sem ber lagalega ábyrgð á skrifum blaðsins, var dæmdur í sekt fyrir meiðyrðin, og fyrrv. dómsmrh. lætur það svo verða eitt af sínum síðustu verkum að gabba konung með ósannindum til að sýkna ritstjórann af því að greiða þessa sekt. Slíkt og annað eins er auðvitað óheyrt í öllum siðuðum löndum og kemur vonandi ekki framar fyrir hér, eftir að þessi undarlega siðlausi maður loks hefir hrökklazt úr ráðherradómi. Og það má hv. þm. Dal. vita, að enginn stjórnmálamaður annar en hann hefði fengizt til að verja slíkt athæfi.