04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2440 í B-deild Alþingistíðinda. (11518)
Stjórnarskipti
Jónas Þorbergsson:
Hv. 1. landsk. vildi leiðrétta þau ummæli mín, að skipun stj. hefði farið fram með þeim hætti, sem venja er til um skipun n., og þótt það sé að vísu rétt, að skipun stj. var að því leyti með öðrum hætti en skipun n., að konungur skipar stj., en ekki n., þá er hitt eigi að siður rétt, að undirbúningurinn undir skipun stj. fór fram eins og um n. væri að ræða, þannig, að hvor flokkanna um sig átti eigið val á þeim mönnum, sem hann vildi hafa í stj., án þess að hinn flokkurinn hefði þar nokkra íhlutun um. Vildi ég, að þetta kæmi fram, vegna þeirra ummæla hv. þm. G.-K., að Framsóknarflokkurinn hefði samþ. að velja hv. 2. þm: Skagf. sem eftirmann fyrrv. dómsmrh., enda var þetta aldrei borið undir Framsóknarfl., því að Sjálfstæðisfl. var það í sjálfsvald sett, hvern mann hann veldi í ráðuneytið af sinni hálfu. Framsóknarfl. átti þar ekkert atkv. um.
Sé ég svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vil hinsvegar víkja nokkrum orðum til hv. þm. G.-K. Ég gat þess áður, að mál þau, sem ég hefði höfðað á Morgunblaðið, hefði ég höfðað fyrir hönd ríkisstofnunar, sem ég ber ábyrgð á, og væru þessi mál því ekki pólitísk mál og gætu þess vegna ekki talizt til þeirra mála, sem framsóknarmenn sem pólitískir menn kynnu að höfða á andstæðinga sína. Í svari sínu til mín virtist hv. þm. G.-K. vilja telja, að árásirnar, sem farið hefðu fram á hendur Helga Tómassyni, hefðu farið fram á meðan hann var embættismaður, og þótti honum því sem svipað stæði á um þau mál, sem Helgi Tómasson hefði höfðað, og þau mál, sem ég hefði höfðað. En þetta er misskilningur hjá hv. þm. G.-K. Það er ekki rétt, að Helgi Tómasson hafi orðið fyrir blaðaárásum meðan hann var embættismaður, því árásirnar hófust ekki fyrr en hann var hættur að vera embættismaður og hafði verið settur af fyrir að hafa misbeitt embættis- og sérfræðiaðstöðu sinni og unnið óhæfuverk, sem gerði hann að undri í fleiri en einu þjóðlandi. Þetta er margkunnugt, og þarf ég ekki að taka neitt nánar fram um það.
Ennfremur vil ég segja nokkur orð út af síðustu ummælum hv. þm. G.-K., þar sent hann sagði, að ég teldi það mitt hlutverk að skjóta skildi fyrir hæstv. fyrrv. dómsmrh. Það er satt, að ég tel mér það skylt, eins og líka fjöldamargir aðrir samherjar hans, að standa með honum á móti því ofsóknaræði, sem gegn honum hefir verið haldið uppi um mörg undanfarin ár af andstæðingum Framsóknarflokksins. Og ég tel mér það hvorki vanvirðu né heldur á neinn hátt mótstæðilegt að fylla flokk þeirra manna, sem fylgja honum að málum, heldur tel ég mér það mikla sæmd og hamingju. (Rödd af þingbekkjum: Þeir hefðu átt að halda um þetta flokksfund). En hlutverk hv. þm. G.-K. er að verja hneykslismál Helga Tómassonar og önnur slík mál, og meðan þannig er verkum skipt milli okkar, mun ég ekki öfunda hann né æskja hlutverkaskipta.