04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (11519)

Stjórnarskipti

Magnús Torfason:

Ég ætla mér ekki að taka þátt í þeim umr., sem hér hafa farið fram, og hefi kvatt mér hljóðs einungis fyrir þá sök, að ég stend sennilega öðruvísi að vígi gagnvart hinni nýskipuðu stj. en allir aðrir hv. þm. En nú hefir hæstv. forseti lyst yfir því, að á öðrum fundi í Sþ. muni fara fram atkvgr. um vantraust á stj., án þess að nokkrar umr. fari þar fram. Ég tel því rétt að gera nú grein fyrir mínu atkv.

Eins og menn vita, hefi ég verið talinn meðal framsóknarmanna, og menn munu því ætla, að myndun þessarar stj. hafi verið borin undir mig. En það hefir ekki verið gert. Mér hefir því verið fyrirmunað að skipa mér í stjórnarfylkinguna, nema svo væri, að ég kastaði sæmd minni. Ég stend því alfrjáls gagnvart þessari stj., og viðskipti mín við hana munu fara eftir málavöxtum og tilgerðum hennar, og mun ég við atkvgr. haga mér eftir því.