05.03.1932
Neðri deild: 21. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)
83. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Ég gat þess áðan í frs.-ræðu minni um ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóla Íslands, að með því frv. er svo ákveðið, að fella skuli niður 1. nr. 49, 4. júní 1924, um ljósmæðraskóla.
Í þeim l. er ein gr., sem ákveður, að áhöld til ljósmæðraumdæmanna úti um land skuli greidd úr ríkissjóði, og þar sent ekki virðist eðlilegt, að það ákvæði falli niður, en hinsvegar óviðeigandi að láta það standa eitt eftir í frv., og virðist heldur ekki geta átt heima í frv. um ljósmæðra- og hjúkrunarkvennaskóla Íslands, leyfir allshn. sér að leggja til, að sú gr. frv. verði færð yfir í yfirsetukvennalögin, þar sem hún virðist eiga betur heima.