04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (11526)
Stjórnarskipti
Jón Baldvinsson:
Þegar till. kom fram á öndverðu þingi um skipun þessarar n., var Alþýðuflokkurinn spurður um, hvort hann vildi eiga fulltrúa í henni, og var því svarað játandi. Ég var síðan kosinn í n., aðeins af þeirri ástæðu, að ég er sá eini Alþfl. maður í þessari hv. d. Að öðrum kosti hefði ég aldrei tekið í mál að taka sæti í n., hvorki meðan þing stæði, né eftir þing. nú hefir hæstv. forsrh. lýst því yfir, að hann ætli sér ekki að skipa þessa n., og ber að skoða þá yfirlýsing hans sem merki þess, að hann líti nú bjartari augum á framtíðina en hann hefir gert til þessa.
Út af þeim ummælum, sem hv. 1. landsk. hafði um starfsemi n., skal ég gera þá játningu, að ég hefi aldrei haft neina trú á því, að hún gæti nokkru afkastað meðan á þingi stæði, enda hafði bæði ég og hv-. 3. landsk. orð um það um það leyti, sem skipun n. var á döfinni. (JónJ: Rétt). Það liggur í augum uppi, að það er erfitt að kynna sér margbrotin og margháttuð skjól, margra ára skýrslur og reikninga, víðsvegar að og frá ólíkum starfsgreinum og finna út úr heim, hvar megi spara. Það var fyrirfram vitanlegt um okkur, a. m. k. tvo nm., hv. 3. landsk. og mig, að lítið yrði úr störfum okkar í n. meðan þing stæði, en hv. 1. landsk. mun hinsvegar hafa haft eitthvað betri tíma, enda hefir hann „stúderað“ þessi plögg eitthvað lítilsháttar, og liggja nú fyrir 3 eða 4 till. frá honum, sem fjalla einungis um það, sem Morgunblaðið hefir verið að tönnlast á undanfarið, svo sem um strandgæzluna og strandferðirnar og fleira þvílíkt. Það er vitaskuld auðvelt fyrir hv. 1. landsk. að taka eitthvað af þeim tölum og greinum, sem Morgunblaðið hefir flutt, og setja þær í nál. sitt. Annars er það um sumar þessar tölur að segja, að þær eru mjög óábyggilegar og sumpart mjög villandi, t. d. í sambandi við tillögur hans um að leggja ríkisskipaútgerðina undir Eimskipafélagið. Ég hefi átt tal um það mál við ýmsa kunnuga menn, og ég hefi þvert á móti komizt að þeirri niðurstöðu, að ef fara ætti að breyta einhverju á þeim sviðum, þá væri það á þá lund, að taka Eimskipafél. og leggja það undir skipaútgerð ríkisins. Í þessu sambandi skal ég benda á það, að hjá ríkisskipaútgerðinni kostar viðkomustaðurinn aðeins 270 kr., en hjá Eimskipafél. kostar hann á 17. hundrað. Ef þess vegna ætti að spara eitthvað á þessum sviðum, þá ætti að leggja Eimskipafél. undir skipaútgerð ríkisins. Ég vil þess vegna leyfa mér að mælast til, að hæstv. ríkisstj. taki tillöguna til athugunar á þann hátt. Ennfremur vildi ég biðja stjórnina að athuga verðið á Ísagagasi, sem vitamalaskrifstofan kaupir; það gas mun ekki framleitt nema á einum stað hér á landi, svo að á því er einskonar einokun, auk þess sem vitamálastjóri er forstjóri í Ísaga, og virðist það fremur óviðfelldið. Vildi ég mælast til, að stj. athugaði þetta.
Annars er ég hissa á því, að hv. 1. landsk., sem þóttist hafa góðan tíma og hafði mjög stór orð um starfsemi n., skuli þegar til kemur ekki hafa fundið annað en það, sem Morgunblaðið hefir verið að tönnlast á árum saman. Og þar sem hann hafði aðstöðu til að heimta skýrslur af embættismönnum og stofnunum og nægan tíma til að vinna úr þeim, þá verð ég að segja það, að afraksturinn hefir orðið helzt til lítill.