04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (11528)

Stjórnarskipti

Jón Þorláksson:

Hv. 2. landsk. hélt því fram, að þær tölur, sem ég hafði fært fram um strandferðakostnað Eimskipafél., væru villandi. Ég hafði fært þessar tölur til með mestu varúð, og vísaði ég jafnframt í heimildir mínar, sem er þriggja manna n., sem ríkisstj. hafði skipað og í áttu sæti Jörundur Brynjólfsson alþm., Vigfús Einarsson skrifstofustjóri í atvmrn. og Brynjólfur Stefánsson skrifstofustjóri í Sjóvátryggingarfélaginu. Fór ég ekki með aðrar tölur en þær, sem þessir menn hafa látið frá sér fara í skýrslu til stj., sem útbýtt hefir verið vélritaðri meðal þm. Hitt er hinsvegar dálítið villandi, þegar hv. 2. landsk. segir, að kostnaðurinn af smáhafnaviðkomu Eimskipafélagsskipanna hafi verið 1600 kr., en ekki nema mm 200 kr. að því er ríkisskipin snertir, og dró hv. þm. svo þá ályktun af þessu, að rétt væri að afhenda Skipaútgerð ríkisins Eimskipafélagsskipin til eignar og umráða. þessar tölur hv. 2. landsk. eru ekki teknar eftir n., heldur hefir hann búið þær til sjálfur, enda er um áreiðanleik þeirra eftir því. Annars þarf engan að undra það, þótt kostnaðurinn af smáhafnaviðkomu millilandaskipa sé meiri en kostnaðurinn af viðkomu strandferðaskipanna, enda hafa hafnirnar meira gagn af viðkomu millilandaskipanna, einkum því þegar skipin hafa viðkomu í Rvík í sömu ferð.

Hv. 2. landsk. var að finna að því, að ég hefði ekki starfað eins mikið í n. og ég hefði haft tíma til, og skal ég ekki taka mér þetta nærri. Þótt ég hafi ekki verið eins störfum hlaðinn og hv. 2. landsk., ætla ég þó, að hann viti, að ég hefi haft fleiru að sinna en þessum nefndarstörfum eingöngu, en ég skal ekki neita því,, að það kann að hafa dregið úr starfsgleði minni að þurfa að sitja einn yfir þessum plöggum, án þess að geta notið hinnar ágætu aðstoðar hv. 2. landsk., og ég er sammála honum um það, að honum farist ekki að finna að því, þótt ég hafi gert lítið í n.

Ég skal ekki eiga frekara orðakast við hæstv. forsrh., enda skoða ég ummæli hans viðvíkjandi viðtækjaverzluninni fremur sem almennar hugleiðingar frá flokki hans að því er snertir samanburð á frjálsri verzlun og fyrri alda verzlunarfyrirkomulagi, en ég álit hinsvegar, þegar um það er að ræða, að stj. taki ákvörðun um einstök atriði í þessum efnum á erfiðum tímum, megi þeir, sem sérstaklega hafa ánægju af því að horfa aftur í söguna að þessu leyti, ekki láta ljómann af ástandi einokunartímabilsins hér á landi glepja sig um of að því er snertir ákvörðun þessara einstöku atriða.